flugvallamál.
Virðulegur forseti. Já, þetta er áhugavert afmæli. Það er rétt hjá hv. þingmanni að þegar þetta gjald var lagt af þá vöruðu ýmsir við því að hinn hlutinn af millilandakerfinu okkar, sem eru varaflugvellir, yrði ekki fjármagnaður nægilega vel og það er rétt. Lítið hefur verið gert en ég ætla ekki að segja ekkert vegna þess að við höfum gert umtalsvert á síðustu árum. Við höfum farið í verulega uppbyggingu á Reykjavíkurflugvelli og við vorum að tala um það hér rétt áðan í sambandi við flugstöð og að tryggja brautina. Við höfum gert verulega hluti á Akureyri með stækkun á flugstöð og flughlaði og öðrum hlutum og einnig eru áform um að Egilsstaðaflugvöllur verði okkar helsti varaflugvöllur. Þingið hefur fjallað um að skynsamlegt sé að leggja á varaflugvallagjald og hefur ráðuneyti mitt sem ráðuneyti flugmála unnið að því. Það er langskynsamlegasta leiðin. Það var fallið frá því í Covid vegna þess að ekki væri á vandann bætandi. Við settum reyndar á 11.000 kr. gjald, sem var ekki neitt varaflugvallagjald, í fyrra og það virtist ekki trufla fólk þannig að 100 kr. varaflugvallagjald, sem við gætum lagt á hér og nú, myndi tryggja (Forseti hringir.) okkur nægilega fjármuni til að byggja upp millilandavaraflugvellina og ég mun vinna að því áfram sem hingað til.