lax- og silungsveiði.
Herra forseti. Hv. þingmaður svaraði í engu spurningu minni um þá ábendingu Landssamtaka veiðifélaga að mikil hætta væri á því að fulltrúi Hafrannsóknastofnunar yrði vanhæfur vegna aðkomu stofnunarinnar að málinu á fyrri stigum. Hann svaraði því engu og hann svaraði því í raun og veru engu hvert er tilefni þess að gera slíka grundvallarbreytingu á skipan þessarar þýðingarmiklu nefndar. Þegar Alþingi ákvað síðast um skipan nefndarinnar, það var með setningu þessara laga 2006, þá skyldu tveir nefndarmenn uppfylla hæfisskilyrði héraðsdómara. Nú er engin krafa af einu eða neinu tagi gerð til þeirra sem eiga að skipa þessa nefnd. Það má spyrja hv. þingmann um heimild sem er í gildandi lögum, í 3. mgr. 44. gr., með leyfi forseta:
„Heimilt er matsnefndinni að kveðja sérfræðinga sér til aðstoðar ef þörf þykir.“ — Og áfram, með leyfi forseta: — „Henni er einnig heimilt að leita eftir áliti eða rannsóknum sérfræðinga eða rannsóknastofnana á lífríki vatns þar sem það hefur þýðingu fyrir úrlausn máls.“
Herra forseti. Ég spyr hv. þingmann: Hafa verið einhver vandamál í störfum matsnefndar? Hafa þær heimildir sem ég hef hér rakið ekki dugað? Og hvaða skýring er á því að í einu vetfangi eigi að falla frá því að tveir nefndarmenn uppfylli strangar kröfur eins og þær að fullnægja skilyrðum til að vera héraðsdómarar yfir í það að ekki eru gerðar neinar kröfur af neinu tagi (Forseti hringir.) til þeirra sem eiga að skipa þessa mikilvægu nefnd?