lax- og silungsveiði.
Hæstv. forseti. Ég hlýt að vera ósammála því að ekki eigi að gera neina kröfu til nefndarmanna sem sitja í arðskrárnefnd. (Gripið fram í.) Það er líka bent á að nefndarmenn uppfylli skilyrði ráðherra sem þá skipar eða hafi þekkingu á þeim lögum sem nefndin vinnur eftir. Það er því ekki þannig að menn ætli ekkert að gera með þennan hlut. Hins vegar er talað sérstaklega um að áhersla sé lögð á fiskifræðilega þekkingu, sérþekkingu á lífríki vatna og straumvatna sem getur meðal annars reynst vel í tengslum við álitaefni í arðskrá. Þarna er ákveðin þekking líka, ekki má vanmeta það og það er mikilvægt atriði að þessi þekking sé til staðar. Við þekkjum það; lengd bakka og allt þetta sem er verið að vinna með í þessum málum. Ég held að þetta sé farsæl niðurstaða í málinu sem er verið að vinna hér eftir. Þetta er lítið brot af því stóra máli sem við höfum verið að fást við í tvö ár en síðustu tvo þingvetur höfum við verið að fjalla um þetta mál. Ég hlýt því að vera ósammála því að ekki sé verið að gera neina kröfu um þekkingu í störfum nefndarinnar í framhaldinu, eftir að við klárum þetta mál frá okkur hér á hinu háa Alþingi.