151. löggjafarþing — 96. fundur,  17. maí 2021.

lax- og silungsveiði.

345. mál
[15:31]
Horfa

Frsm. minni hluta atvinnuvn. (Ólafur Ísleifsson) (M) (andsvar):

Forseti. Það er nú ekki ónýtt að ræða þessi mál við hæstaréttarlögmenn, bæði sem andsvaranda og á forsetastóli. Það er auðvitað alveg hárrétt, sem hv. þingmaður rifjar hér upp, að síðast voru gerðar breytingar á skipan matsnefndar árið 2006 og fram að þeim tíma voru tveir tilnefndir af Hæstarétti og ráðherra hafði enga aðkomu. En það breyttist 2006 og frá þeim tíma er einn tilnefndur af Hæstarétti. Þessi tilnefning af hálfu Hæstaréttar er náttúrlega, geri ég ráð fyrir, skýrð með að litið sé þannig á að þessi viðfangsefni séu lögfræðilegs eðlis. Það er undirstrikað og áréttað með því ákvæði laganna að þessir tveir fulltrúar skuli uppfylla hæfisskilyrði héraðsdómara. Síðan er það með rammgerðum hætti tryggt að matsnefnd geti aflað sér líffræðilegra, fiskifræðilega álita. Það eru þær tvær heimildir sem ég fór mjög rækilega yfir í minni ræðu.

Ég veit ekki almennilega hvort það var einhver tónn hér í garð Hæstaréttar, orð eins og: Hann hefur nóg með sig. Ég veit ekki hvað er verið að fara með því. En þegar þannig stendur á að setja á til starfa menn sem telja má að hafi verulega burði sem lögfræðingar er náttúrlega nærtækt að leita til Hæstaréttar í því sambandi. Ég átta mig hins vegar ekki á því ef hv. þingmaður hefur efasemdir um að þetta sé verkefni sem á einhvern hátt sé truflandi fyrir Hæstarétt. Hvernig sér hv. þingmaður þá eiginlega fyrir sér að Hafrannsóknastofnun eigi að fara að tilnefna fulltrúa til starfa í nefndum sem hafa mikla þýðingu og í málum þar sem geysilegir hagsmunir eru undir?