151. löggjafarþing — 96. fundur,  17. maí 2021.

ferðagjöf.

776. mál
[16:20]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Að sjálfsögðu er nauðsynlegt að við gætum að því að starfa innan marka þeirra skuldbindinga sem við höfum undirgengist á alþjóðlegum vettvangi en hugsunin á bak við það að framlengja eldri ferðagjöfina er sú að talsverður hluti hennar er ónýttur. Gagnvart því fólki sem stæði frammi fyrir því að það hefði umleikis 10.000 kr. gæti það kannski verið aukinn hvati til að færa sér þetta í nyt, fleiri möguleikar myndu þá bjóðast.

Áttum okkur á því að ferðaþjónustan er að verulegu leyti og kannski að mestu leyti sjálfsprottin atvinnugrein. Hún er dæmi um hverju einkaframtakið fær áorkað. Þessi grein óx upp í það á undraskömmum tíma að verða í hópi leiðandi atvinnugreina í landinu, var orðin meginuppspretta gjaldeyrisöflunar, atvinnu og tekjumyndunar. Þegar þessi grein verður fyrir því áfalli, eins og við þekkjum, vegna kórónuveirufaraldursins að lamast nánast gjörsamlega er ekki nema maklegt af hálfu opinberra aðila að stutt sé myndarlega við hana þegar hún sér fram á að geta risið upp á ný. Við eigum auðvitað mjög mikið undir því Íslendingar að ferðaþjónustan rísi upp. Ef það væri mögulegt vegna þeirra reglna um ríkisstyrki sem við höfum verið að ræða hér yrði þessi tvöfalda ferðagjöf alveg ótvírætt mjög mikil lyftistöng fyrir greinina. Það var af þeim ástæðum sem við hv. þm. Sigurður Páll Jónsson lögðum fram þá breytingartillögu þegar fyrri ferðagjöfin var samþykkt að hún yrði ekki 5.000 kr. heldur 15.000 kr. — til að vega upp á móti þessu áfalli (Forseti hringir.) og lyfta greininni upp þannig að hún gæti orðið aftur grundvöllur fyrir atvinnu, gjaldeyrissköpun og tekjumyndun í landinu.