151. löggjafarþing — 96. fundur,  17. maí 2021.

ferðagjöf.

776. mál
[16:22]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég hefði ákaflega gaman af því að fara að tala um hagræna þætti í ferðaþjónustu, þetta er nú það sem maður menntaði sig m.a. til. Auðvitað er það þannig að 42% gjaldeyristekna árið 2018 komu frá ferðaþjónustunni, 8,5% af landsframleiðslu. Greinin er gríðarlega mikilvæg. Þessar 5.000 kr. eru nefnilega hvati en við höfum gert svo ótal margt annað varðandi ferðaþjónustuna sem er miklu stærra í samhenginu. En fyrst og fremst er það hvati að minna á þá möguleika sem þarna eru.

Það sem ég var að segja áðan um það af hverju við framlengdum ekki bara núverandi gjöf, og þá gætu einhverjir einstaklingar haft 10.000 kr. sem þeir hafa ekki nýtt fram til 30. september, var að það á eftir að greina hvaða hópi þessi 80.000 tilheyra. Eru þetta Íslendingar sem búa erlendis og hafa ekkert verið að huga að þessu, eldri borgarar eða hvað sem það er?

En það sem snýr fyrst og fremst að því að styrkja ferðaþjónustuna, þá ótrúlega mikilvægu grein sem ég hef fulla trú á að rísi hátt og hratt upp á nýjan leik, er að koma þessu fjármagni út með skipulagðari hætti, færa fjárveitingarnar inn í nýja 5.000 kr. inneign til fólks sem nýtir sér hana þá mögulega betur þannig að þetta renni betur út. Við vitum ekki nákvæmlega hver talan verður um mánaðamótin. Ég reikna með að svolítil umræða verði um þetta og að þeir sem eiga 5.000 kr. inni fari þá að huga að því að koma þeim út og nýta sér þær, fari á veitingahús eða í gistingu eða hvað sem er. Ég held að þessu sé betur varið með því að gera þetta með þeim hætti sem við boðum hér, það séu raunverulega meiri líkur á að þeir sem hugsanlega eru að nýta sér þetta muni nýta sér þær fjárveitingar sem eru til staðar í gegnum þetta mál.