ferðagjöf.
Herra forseti. Ég ákvað að taka þetta í andsvari. Þetta er að gerast með svolítið sérstökum hætti. Ég óskaði eftir að málið væri tekið upp aftur inn í atvinnuveganefnd milli 2. og 3. umr. en þær upplýsingar sem eru að koma eru að ef við myndum bæta í og lengja í ferðagjöf eitt þyrftum við væntanlega fá heimild frá ESA og þá væri búið að seinka öllu ferlinu. Það er rétt að hafa það í huga í þessu máli og þess vegna vil ég kalla þetta aftur. En við þurfum að afgreiða málið fljótt svo að þetta virki um mánaðamótin. Hefði maður fengið þær upplýsingar aðeins fyrr sem maður var að lesa í símanum núna hefði maður kannski bara klárað málið í atkvæðagreiðslu strax. En allt í góðu, það er bara fínt að fá málið hingað inn. Við fáum þá endanlega á hreint að ekki viljum við trufla með því að fá einhverja heimild frá ESA sem gæti tekið langan tíma. Sumarið er tíminn þegar þessi starfsemi og íslenska ferðamennskan fer í gang. Því er nauðsynlegt að þetta gangi vel fyrir sig og við komum þessu öllu saman af stað. Umræða um 5.000 kr., 10.000 kr. eða 15.000 kr. er bara eins og hún er. Ég hefði örugglega getað rætt þetta sjálfur í nefndinni á sínum tíma, hvort þetta mætti vera hærra og allt það. En það er bara ákvörðun. Eins og ég kom að í fyrri ræðu er búið að vinna gott verk og almennt er mikil og góð samstaða innan ferðaþjónustunnar um það sem gert hefur verið síðustu ár. Við samþykktum ferðagjöf eitt fyrst í fjárauka eitt 23. mars í fyrra. Ferlið átti að gilda til áramóta en við lengdum það síðan til loka maí. Það er þá orðin töluverð saga. En allan þennan tíma hafa ekki allir nýtt sér hana að fullu.
Ég vildi bara grípa tækifærið til að koma þessum upplýsingum að hér í umræðunni en bæði ég og hv. þingmaður erum tengd ferðaþjónustunni og skiljum þetta, held ég, allt ágætlega í stóru myndinni.