151. löggjafarþing — 96. fundur,  17. maí 2021.

ferðagjöf.

776. mál
[16:37]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Ég ætla að fara nokkrum orðum um þetta frumvarp og nefndarálit. Ferðagjöfin er að mörgu leyti vel heppnuð hugmynd, því verður ekki neitað. Hún hitti sannarlega í mark ef ég má orða það svo. Þrátt fyrir að vera afskaplega lág upphæð fyrir hvern og einn sem ætlar að nýta sér hana, heilar 5.000 kr., þá hitti hún sannarlega í mark. Nú hyggjast stjórnvöld endurtaka leikinn með vel heppnaðar gjafir sínar til skattgreiðenda. Það er eiginlega það sem ég ætlaði helst að tala um. Ástæða þess að ég er kominn hingað upp í ræðustól eru þessar gjafaumbúðir sem eru settar utan um greiðslurnar sem hafa farið afskaplega mikið í taugarnar á mér.

Herra forseti. Í raun og veru er verið að taka skattpeninga fólks og gefa þeim aftur, hverjum og einum, bundið við ríkisborgararétt eða eitthvað slíkt. Verið er að taka skattana og færa þá aftur til baka og kalla það gjöf. Þetta er náttúrlega algjört rangheiti. Ég tek undir með hv. þm. Ólafi Ísleifssyni þegar hann nefndi að fyrst hefði þetta verið kallað ferðaávísun sem mér finnst vera miklu skaplegra nafn en ferðagjöf, nú eða ferðastyrkur eða eitthvað slíkt en þessar gjafaumbúðir sem frumvarpið er sett í. Það fer í taugarnar á mér, ég verð að játa það.

Þetta hefur tekist ágætlega og setti svolítið líf í ferðamennskuna út um landið síðasta sumar, í hótel og veitingastaði og þá aðila sem menn gátu nýtt sér til að nota sína ferðagjöf og var sannarlega gott til að styðja ferðaþjónustuna. Eins og raunin er núna, herra forseti, er faraldurinn sem betur fer að líða undir lok en stjórnvöld vilja auðvitað gernýta þessa góðu hugmynd og færa fólki aftur að gjöf peningana sína, peningana sem var nýbúið að rukka það um. Ég geri svo sem ekki athugasemdir við það. Enn þá er lítið að gera í ferðaþjónustunni og þetta kemur sér eflaust ágætlega, a.m.k. næstu vikurnar, kannski eitthvað fram á sumarið. Ég á von á því að ferðamannastraumurinn muni vaxa mjög hratt á næstu vikum miðað við ástandið á faraldrinum.

Hvað hefur þetta kostað? Miðað við ánægjuna með þetta hefur það ekki kostað ríkissjóð nema smáaura. Það eru einhverjar 700–800 milljónir sem ríkissjóður hefur lagt út vegna ferðagjafar eitt, þ.e. ferðagjafarinnar sem veitt var í fyrra, hefur gilt hingað til og mun gilda til loka þessa mánaðar. 700–800 milljónir sem eru náttúrlega bara smáaurar miðað við hvaða athygli málið hefur fengið. 5.000 kr. eru ekki há upphæð. Þegar fólk fer í ferðalag, kaupir sér mat á veitingahúsi eða gistingu á hóteli er þetta bara brot af þeim kostnaði. Það nægir ekki fyrir hálfri nótt, það nægir ekki fyrir máltíð.

Þess vegna styð ég tillögu sem kom fram hér áðan frá hv. þm. Ólafi Ísleifssyni um að málið verði aftur tekið inn í nefndina. Það væri vel til fundið að taka það aftur inn í nefndina og leitast við að ná samkomulagi um að þeir sem ekki nýttu ferðagjöfina í fyrra fái framlengingu fram á þetta sumar þannig að þeir geti haft 10.000 kr. til ráðstöfunar í sumar. Það færi langt með að duga fyrir gistingu eina nótt á hóteli fyrir viðkomandi og myndi auka nýtinguna og auðvitað veltuna líka í ferðaþjónustu. Ég styð það því eindregið.

Það sem kemur í veg fyrir það er, eins og stendur í greinargerðinni, Eftirlitsstofnun EFTA (ESA). Þetta er háð samþykki þeirra. Það er svo einkennilegt að við stöndum hér á Alþingi Íslendinga og erum að setja lög fyrir landið en þá er það háð eftirlitsstofnun úti í Evrópu hvort þessi gjöf, 5.000 kr., verði framlengd um þrjá mánuði eða fjóra. Það er háð samþykki úti í Evrópu að stjórnvöld á Íslandi geti framlengt um fjóra mánuði gjöf, sem búið var að ákveða að gefa, til þeirra sem ekki hafa nýtt sér hana. Hvert er löggjafarvaldið farið? Er það algerlega runnið okkur úr greipum, herra forseti? Það er dapurlegt.

Mér líst vel á þá hugmynd að framlengja þessa fyrri gjöf, ónýttu gjöf. Það eru einhver 100.000 manns sem eiga eftir að nýta sér ferðagjöfina frá því í fyrra. Um helmingur af þeim sem fengu hana í fyrra hafa ekki nýtt sér hana þannig að þetta myndi auka veltu í ferðamannaþjónustunni, veita fyrirtækjum innspýtingu og byr í seglin til að halda haus í gegnum þessa erfiðu tíma þar sem erlendum ferðamönnum hefur fækkað stórkostlega. Það væri bara til góðs þannig að ég styð það.

Hv. þm. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sagðist persónulega ekki vilja lengja í þessu, hver sem ástæðan fyrir því er. Er það vegna þess að menn nenna ekki að leita til Evrópu fyrir samþykki eða skammast þeir sín fyrir það? Auðvitað er það einboðið, herra forseti, að lengja í þessu, það er bara augljóst. Þeir sem ekki áttu heimangengt í fyrra og gátu ekki nýtt sér gjöfina, kannski vegna sóttvarna, kannski vegna þess að þeir voru í sjálfskipaðri sóttkví, af hverju ekki að leyfa því fólki að nýta sér alla upphæðina, tvöfalda ferðagjöf, í sumar? Er það af því að menn eru svo hræddir við valdið úti í Evrópu eða nenna þeir þessu ekki eða halda að þetta tefji málið?

Það komu spurningar um það hverjir muni nýta sér þetta og hverjir hefðu nýtt sér það. Ég hef mestar áhyggjur af því hvar þetta er nýtt. Í tölum í greinargerðinni kemur fram að þetta er nýtt með mjög misjöfnum hætti um landið. Svæði sem hafa átt undir högg að sækja, eins og Norðurland vestra og Vestfirðir og Austfirðir, eru ekki að fá mikið í gegnum þessa ferðagjöf. Ég hef áhyggjur af því. Ég hef miklu meiri áhyggjur af því, herra forseti.