ferðagjöf.
Herra forseti. Það var víða komið við og svolítið sundurslitið hér áðan. Svo að það komi fram óskaði sá sem hér stendur eftir því að málið væri tekið aftur inn í nefndina á milli umræðna. Ég held að það hafi komið fram áðan.
Varðandi skatttekjurnar okkar hefur það sem hefur komið inn í gegnum ferðaþjónustuna og atvinnustarfsemi sem tengist henni á síðustu árum verið 60, 70, 80 milljarðar. Þar af eru 30 milljarðar í gegnum virðisaukann. Þannig að það er í raun atvinnugreinin sjálf sem hefur skapað gríðarlegar skatttekjur fyrir ríkið. Ferðaþjónustan hefur verið að skapa 8–9% af skatttekjum ríkisins með einhverjum hætti hvernig sem við lítum á það.
Ég kom líka inn á að við viljum passa upp á að við tefjum það ekki með því að koma með frekari fyrirspurn út frá ríkisstyrkjareglum um að lengja enn frekar í ferðagjöf eitt sem við framlengdum um áramót. Tíminn er þá orðinn heilt ár sem almenningur hefur getað nýtt sér ferðagjöfina. Við viljum reyna að stuðla að því að fjármagnið renni út og nýtist vel og hvetja þá líka til þess síðustu dagana sem ferðagjöf eitt er virk að þessi 74.000 manns sem hafa ekki nýtt sér hana komi henni þá mögulega á einhvern annan eða nýti sér hana með einhverjum hætti.
Það var farið vítt og breitt en ég vildi rétt árétta nokkra hluti. Fyrir mér er ekki stóra málið hvort talað sé um ferðagjöf eða ferðaávísun, mér finnst það það minnsta til að ræða í þessu. (Forseti hringir.) En mikil áhersla var á það hjá hv. þingmanni.