ferðagjöf.
Herra forseti. Ég veit ekki hvort það kom einhver spurning frá hv. þingmanni. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni samt fyrir þessar hugmyndir og athugasemdir. Hann óskaði eftir því að málið yrði tekið aftur inn í nefndina. Ég fagna því og hef lýst yfir ánægju minni með að það verði gert til að skoðað verði ofan í kjölinn hvort möguleiki sé á því hvort ferðagjöfin frá því í fyrra verði framlengd og afhent samhliða ferðagjöf sem verið er að samþykkja samkvæmt þessu frumvarpi. Eins og hv. þingmaður nefndi mun það auðvitað nýtast fólki enn betur en fyrr, eins og ég kom að í minni ræðu, að hafa til ráðstöfunar 10.000 kr. á mann, þeir sem ættu gjöfina ónýtta og þeir sem nýttu hana hefðu þá einnig sinn 5.000 kall. Þannig nýtist það öllum betur. Það nýtist fólkinu betur, það nýtist ferðaþjónustunni betur, það eflir atvinnulíf og heldur uppi þjónustu meðan við erum að ganga í gegnum síðustu skrefin í þessum faraldri. Við erum alveg sammála varðandi nýtinguna og nauðsynina á þessu. Þetta hefur gefist vel.
Varðandi nafnið ferðagjöf eða ferðaávísun var ég bara að benda á að þetta væri svolítið afkáralegt. Ég tengdi þetta ekki við ferðaþjónustuna sjálfa og hversu mikið hún hefur lagt til þjóðarbúsins sem hún hefur að sjálfsögðu gert undanfarin ár. Það eru gífurlegar tekjur sem þar hafa streymt inn í þjóðarbúið síðustu nokkur ár og í raun og veru algerlega snúið hag þjóðarbúsins til hins betra eftir bankahrunið (Forseti hringir.) upp úr 2014–2015, þannig að við erum í allt annarri stöðu núna heldur en áður og í þeirri stöðu að geta tekist á við áföll eins og þetta.