störf þingsins.
Herra forseti. Ég tek undir meginatriðin í máli þingmanna hér á undan mér um Palestínu og minni á ályktun þingflokks Vinstri grænna þar um. En næstu tvo daga, herra forseti, fara fram formennskuskipti í Norðurskautsráðinu. Þá lýkur farsælli tveggja ára formennsku Íslands þrátt fyrir vandræðin vegna Covid og Rússland tekur við. Til marks um mikilvægi norðurslóðamála eru hér allir ráðherrar ríkjanna átta sem taka þátt í ráðherrafundinum í Hörpu. Nú þegar við blasir þessi uggvænlega þróun umhverfismála á norðurslóðum er alveg ljóst að það kallar ekki bara á samábyrgð ríkjanna átta heldur allra annarra ríkja heims. Það leiðir til þess að við þurfum að efla og skipuleggja samstarf allra þjóða við að ná tökum á losun gróðurhúsalofttegunda umfram Parísarsamkomulagið og gleyma þá ekki bindingu kolefnis í leiðinni.
Á sama tíma og þetta er að gerast liggur ný norðurslóðastefna Íslands frammi. Um er að ræða þverpólitískt skjal, nokkuð merkilegt, sem er til marks um samábyrgð og samvinnu flokkanna átta hér á Alþingi. Nefndarálitið er á dagskrá í dag og þarna koma fram 19 atriði þar sem loftslagsmálin og jafnrétti og friðsamleg samvinna og lágspenna eru nefnd. Ég ætla ekki að fjölyrða um það en þetta er í stórum dráttum mjög framsækin stefna.
Ég ætla aðeins að segja örfá orð um framhaldið, herra forseti. Utanríkisráðherra þarf, í samráði við hv. utanríkismálanefnd, að efna til umræðna um þessa stefnu með þátttöku sérfræðinga með það fyrir augum að aðgerðaáætlun liggi fyrir á grunni norðurslóðastefnunnar á næsta þingi eða þarnæsta. Það minnir okkur á að við þurfum að gera það til að geta hert áherslur og aukið samstarf og komið meiru í verk.