151. löggjafarþing — 97. fundur,  18. maí 2021.

loftferðir.

613. mál
[14:34]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (S) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Þingmál þetta hefur tekið mjög jákvæðum breytingum í meðförum þingsins hvað því viðkemur að málið tekur ekki lengur til íslenskra ríkisborgara. Það var nauðsynleg breyting sem gerð hefur verið á frumvarpinu. Hins vegar stendur enn út af atriði er lýtur að samspili meðalhófs og brýnnar nauðsynjar sem felst í gildistíma þessa máls þar sem kveðið er á um að þetta lagafrumvarp, verði það að lögum, veiti heimild til handa ráðherra til loka ársins 2022. Ég vil bara nefna það hér að ég boða breytingu á þessu tiltekna atriði við 3. umr. málsins.