151. löggjafarþing — 97. fundur,  18. maí 2021.

loftferðir.

613. mál
[14:35]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þetta var áhugavert, það er eins gott að passa stólinn sinn. Þetta mál hefur farið í áhugaverðan feril hér á þingi, allt frá því að það var fyrst lagt fram af hálfu umhverfis- og samgöngunefndar fyrir u.þ.b. tveim mánuðum. Til að gera langa sögu stutta klofnaði nefndin í máli sínu og fram komu þrjú nefndarálit. Tvö þeirra voru með breytingartillögum og stefndi eiginlega í að ekki tækist að klára þetta mál með sóma. En það verður að segja meiri hluta nefndarinnar til hróss að þegar málið var kallað inn á milli umræðna var sú ágæta leið farin að ná samstöðu í nefndinni um breytingartillögur, allar þær sem lagðar höfðu verið fram, þannig að samstaða náðist í nefndinni. Ég hefði gjarnan viljað sjá málið fá meiri umræðu og það er ýmislegt annað sem mætti skoða betur í þessu máli, ekki síst í ljósi þess að töluvert hefur breyst hvað varðar sóttvarnir á þeim tveimur mánuðum sem liðnir eru. (Forseti hringir.) Sú breyting sem nefndin sammæltist um lýtur ekki síst að því sem undir er, því sem sú sem hér stendur lagði fram með stuðningi góðra samþingsmanna, að koma í veg fyrir að íslenskum ríkisborgurum yrði meinuð för til landsins. Það var mjög mikilvæg breyting þannig að við styðjum þetta mál eins og það lítur út núna.