loftferðir.
Herra forseti. Sem flutningsmaður þessa alls þarf ég aðeins að koma upplýsingum hér að. Í fyrsta lagi er það það sem hv. þingmaður var að ræða hér á undan. Við vorum búin að lenda þessu vafaatriði varðandi stjórnarskrána. Nefndin öll var búin að afgreiða málið með einu nefndaráliti af þessum þremur. Svo gerist það að tveir þingmenn óska eftir því að málið sé tekið fyrir nefndina aftur og það var gert og þá snýst þetta um ákvæðið um gildistímann. Þetta er þannig að það er verið að miða við 18 mánuði. Þetta er gert til þess að hægt sé að bregðast við. Nú eru 178 lönd á hááhættulistanum. Það getur gerst aftur. Það getur vel verið að grípa þurfi til þessarar reglugerðar sem er endurskoðuð á fjögurra vikna fresti og þá er það auðvitað mjög þungvinnt ef á að fara að leggja fram þingmál hér og endurvekja þessi lög með öllu því sem því fylgir. Þess vegna er þessi 18 mánaða gildistími mjög hóflegur og ég tala nú ekki um þegar reglugerðin er endurskoðuð á fjögurra vikna fresti.