151. löggjafarþing — 97. fundur,  18. maí 2021.

fjölmiðlar.

367. mál
[16:47]
Horfa

Páll Magnússon (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og þessar vangaveltur. Ég skal bara vinda mér strax í spurninguna eða þetta sjónarmið um fjölbreytnina. Ég er alveg sammála því grundvallarsjónarmiði að stuðla beri að sem mestri fjölbreytni í fjölmiðlaflóru Íslands. Ég held samt ekki að það sé best gert með því að þynna þetta út með þeim hætti að upphæðirnar lækki og lækki og viðtakendunum fjölgi og fjölgi. Þá held ég að betra sé að grípa til ráðstafana sem skipta máli fyrir þá fjölmiðla sem skipta máli. Þetta er ég ekki að segja til þess að lítilsvirða hina smærri, auk þess sem segja má að reglurnar við úthlutunina hygli hinum smærri að því leyti til að stærri hluti, miklu stærri hluti, af þeirra rekstrarkostnaði — ef við tökum t.d. netmiðlana sem fyrst og fremst er að finna þar og eru kannski með hálfsmánaðarútgáfu á prentuðu blaði, rekstrarkostnaður þeirra samanstendur hlutfallslega miklu meira af styrkhæfum launum heldur en hinna stærri þar sem rekstrarkostnaður og fjárbinding er í prentsmiðjum og alls konar öðrum hlutum sem ekki koma til álita þegar tekin er afstaða til þess hvort þeir séu styrkhæfir eða ekki. Frumvarpið eins og það stendur felur í sér að þakið sé 25%. Það myndi þýða í krónum ábyggilega u.þ.b. 100 millj. kr., að þakið sé einhvers staðar þar af því að enginn má taka meira en 25% af heildinni. Í minnihlutatillögunni felst að þetta þak verði í 50 milljónum en ekki 100. Ég held að fyrir þessa stóru meginstraumsfjölmiðla skipti 50 milljónir eiginlega engum sköpum en 100 milljónirnar þó einhverju máli.