151. löggjafarþing — 97. fundur,  18. maí 2021.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

688. mál
[21:45]
Horfa

Flm. (Jón Steindór Valdimarsson) (V):

Herra forseti. Nýsköpun þarfnast margvíslegra næringarefna, bæði efnislegra og huglægra. Horfa verður á nýsköpun sem viðvarandi viðfangsefni en ekki skammtímaúrræði til að grípa til þegar að kreppir. Móta þarf stuðningsumhverfi til langs tíma. Þetta á ekki síst við um fjármögnun, styrki, framlag til vísisjóða og skattalegra hvata. Þannig fæst nauðsynleg festa sem er grundvallaratriði í uppbyggingu útflutningsdrifinna hugvitsfyrirtækja. Til viðbótar vitum við að krónan og háir vextir valda sveiflum sem reynast öllum fyrirtækjum skeinuhættar. Besta lausnin er að taka upp evru í stað krónunnar. Sá þáttur verður þó ekki til frekari umræðu að þessu sinni.

Herra forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi þingflokks Viðreisnar sem hefur það að markmiði að skapa meiri festu í möguleikum nýsköpunar- og sprotafyrirtækja til að sækja sér fjármagn til vaxtar. Með 4. gr. laga nr. 37/20, um breytingu á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru, var bætt nýju ákvæði til bráðabirgða við lög nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Í því var kveðið á um tímabundna heimild lífeyrissjóða til að eiga allt að 35%, í stað 20%, af hlutdeildarskírteinum eða hlutum í sjóðum um sameiginlega fjárfestingu eða einstakri deild þeirra, þó aldrei umfram 1% heildareigna sinna í hverjum sjóði um sameiginlega fjárfestingu samkvæmt málsgreininni. Heimildin nær til sjóða um sameiginlega fjárfestingu sem eingöngu fjárfesta í litlum eða meðalstórum fyrirtækjum samkvæmt 3. gr. laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki. Innlausnir í sjóðunum skulu fyrst fara fram að fimm árum liðnum frá því þeir hófu fjárfestingar. Heimild þess gildir til 1. janúar árið 2025.

Herra forseti. Bráðabirgðaákvæði þetta var einn liður í því að bæta fjárfestingarumhverfi nýsköpunar hér á landi, t.d. með því að auðvelda stofnun nýsköpunarsjóða, nánar tiltekið svokallaðra vísisjóða. Með breytingunni geta þrír lífeyrissjóðir haft aðkomu að sjóði í stað fimm áður og breytingin auðveldar því fjármögnun slíkra sjóða og styður við önnur markmið um að bæta fjárfestingarumhverfi nýsköpunar hér á landi. Má í því sambandi nefna Kríu – sprota- og nýsköpunarsjóð sem var settur á fót með lögum nr. 65/20 og er nýtekinn til starfa. Kríu er einmitt ætlað að fjárfesta í vísisjóðum á borð við þá sem lífeyrissjóðunum er samkvæmt frumvarpinu sem hér er til umræðu veitt rýmri heimild til að fjárfesta í.

Herra forseti. Með þessu frumvarpi er lagt til að heimild sem kveðið er á um í bráðabirgðaákvæðinu sem áður hefur verið nefnt verði gerð varanleg, þó með breytingum. Þannig verði lífeyrissjóði heimilt að eiga allt að 35% í stað 20% af hlutdeildarskírteinum eða hlutum í sjóðum um sameiginlega fjárfestingu eða einstakri deild þeirra. Heimildin nær til sjóða um sameiginlega fjárfestingu sem eingöngu fjárfesta í litlum eða meðalstórum fyrirtækjum samkvæmt lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki. Þær breytingar verða frá bráðabirgðaákvæðinu að bann við því að fjárfesting fari umfram 1% af heildareignum lífeyrissjóðs er fellt niður. Við bætist að lífeyrissjóðir taki upp ákvæði um það í fjárfestingarstefnu sinni hve hátt hlutfall af eignum þeirra megi vera í slíkum sjóðum. Þá falli einnig niður ákvæði um að innlausn megi fyrst fara fram að liðnum fimm árum.

Herra forseti. Sprota- og nýsköpunarfyrirtæki fást við verkefni sem eru þess eðlis að þau taka oftar en ekki langan tíma. Þau skila sjaldnast tekjum sem rísa undir kostnaði við reksturinn lengi framan af. Af þessum sökum hafa verið sett upp margvísleg stuðnings- og styrkjakerfi. Það gildir hér á landi jafnt og í helstu samkeppnislöndum okkar. Má þar einkum nefna Tækniþróunarsjóð og Rannsóknasjóð. Svokallaðir vísisjóðir, eða upp á ensku „venture capital funds“, eru eitt form fjárfestingarsjóða sem fjárfesta í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum. Þeir sérhæfa sig gjarnan í mismunandi stigum í þróun fyrirtækja en einnig eftir einstökum geirum. Vísisjóðir eru frábrugðnir öðrum hefðbundnum fjárfestingarsjóðum að því leyti að stjórnendur sjóðanna hafa sprotafjárfestingar að meginstarfi, eru sjálfir hluthafar í sjóðnum og hafa mun meiri aðkomu að rekstri og stefnumótun þeirra sprotafyrirtækja sem þeir fjárfesta í en almennt gengur og gerist.

Herra forseti. Mikilvægt er að skapa þannig umgjörð um sprota- og nýsköpunarfyrirtæki, sem byggjast jafnan á vísindum, tækni og hugviti, að möguleikum þeirra til vaxtar séu ekki settar skorður vegna skorts á fjármagni. Verði það raunin er hætt við að beinum stuðningi á fyrri stigum, þ.e. ýmiss konar styrkjum, sé kastað á glæ. Af þessum sökum er mikilvægt að sem flestir vísisjóðir nái að spretta upp á næstu árum og áratugum. Það blasir við að hér geta lífeyrissjóðir landsmanna haft veigamiklu hlutverki að gegna og hafa þegar gert.

Herra forseti. Umrætt bráðabirgðaákvæði gildir til 1. janúar 2025. Eftir það fellur heimild lífeyrissjóðanna í fyrra horf og ekki dugar lengur að þrír lífeyrissjóðir komi að sjóði. Þeir þurfa þá að nýju að verða a.m.k. fimm. Þar með hverfa þeir kostir sem bráðabirgðaákvæðið hefur, þ.e. að styðja við bætt fjárfestingarumhverfi nýsköpunar hér á landi. Þess vegna er mikilvægt að gera heimilt til frambúðar að lífeyrissjóður geti átt allt að 35% af hlutdeildarskírteinum eða hlutum í sjóðum um sameiginlega fjárfestingu eða einstakri deild þeirra í stað 20% sem er meginreglan og verður það að nýju þegar bráðabirgðaákvæðið fellur niður.

Herra forseti. Það tekur markað fyrir sérhæfða sjóði nokkurn tíma að laga sig að breyttu regluverki. Undirbúningur að stofnun slíkra sjóða tekur nokkurn tíma. Varanleg heimild eykur jákvæð áhrif og stuðlar að fjölbreyttri flóru nýrra sjóða. Rekstraraðilar sem hyggjast stofna slíka sjóði þurfa að sjá fram á að geta nýtt tækifæri til lengri tíma. Oft er horft til þess að stofna fleiri samkynja sjóði af sama rekstraraðila þegar verkefni sem fyrsti sjóðurinn hefur fjárfest í eru komin á það stig að það færi að styttast í sölu á eignum og útgreiðslu til fjárfesta. Slíkt fyrirkomulag er mikilvægt til að unnt sé að stuðla að hagkvæmari rekstri slíkra sjóða.

Herra forseti. Starfandi lífeyrissjóðir í landinu eru nú 21 talsins. Þeir eru ólíkir að uppbyggingu og stærð. Þá er fjárfestingarstefna þeirra sömuleiðis ólík. Þegar haft er í huga að sjóðir um sameiginlega fjárfestingu þurfa að ná tiltekinni lágmarksstærð til að teljast hagkvæm rekstrareining er ljóst að 1% þak getur verið mjög hamlandi. Æskileg stærð slíkra sjóða er í það minnsta 5–8 milljarðar kr. Af þessum sökum er rétt að fella þakið niður en mæla þess í stað fyrir um að lífeyrissjóðir skuli kveða á um það í fjárfestingarstefnu sinni hve hátt hlutfall af eignum lífeyrissjóðs megi vera í slíkum sjóðum.

Herra forseti. Takmarkanir á innlausn eru að mati flutningsmanna óþarfar og hafa ekki sýnilegan efnislegan tilgang. Vísisjóðir hafa oftar en ekki mjög takmarkaða getu til að bjóða fjárfestum upp á innlausn enda tekur að jafnaði u.þ.b. tíu ár að byggja upp fyrirtæki á grunni nýsköpunar. Vísisjóðirnir hafa skilgreindan líftíma sem ætlað er að veita fjárfestum ákveðna vissu fyrir því að leitast verði við að selja eignir og skila fjármagninu til baka innan tiltekinna tímamarka. Hlutdeild í slíkum sjóðum er almennt framseljanleg og eftirmarkaðir eru fyrir hendi. Sérstakar hömlur á innlausn eru til þess fallnar að takmarka þann árangur sem stefnt er að. Slíkar takmarkanir styðja ekki við skilvirka eignastýringu lífeyrissjóða sem eru einmitt langtímafjárfestingar.

Herra forseti. Í umsögn sinni frá því 29. apríl 2020 um frumvarpið sem varð að lögum og setti inn þetta bráðabirgðaákvæði gerðu Landssamtök lífeyrissjóða veigamiklar athugasemdir við það ákvæði. Frumvarp það sem hér er lagt fram hefur tekið og tekur talsvert mið af þessum athugasemdum.

Herra forseti. Þetta frumvarp sem ég hef nú mælt fyrir er annað af tveimur frumvörpum þingflokks Viðreisnar um þessi efni sem nú liggja fyrir í þinginu. Þeim er báðum ætlað að efla nýsköpun og auka fyrirsjáanleika. Bæði fela í sér að gera bráðabirgðaákvæði varanleg. Hitt frumvarpið sem mælt var fyrir hér í þinginu þann 16. mars síðastliðinn er nú til umfjöllunar í efnahags- og viðskiptanefnd en þar er gert ráð fyrir því að festa í sessi hækkun þaks og hlutfalls endurgreiðslna vegna þróunar- og rannsóknarkostnaðar.

Herra forseti. Nýsköpun er okkur nauðsynleg. Við vitum að við réttar aðstæður geta vaxið úr grasi öflug fyrirtæki á heimsvísu sem drifin eru af hugviti, skapa verðmæti til útflutnings og hálaunuð störf fyrir sérhæft starfsfólk. Þessum fyrirtækjum þarf að fjölga og það þarf að hraða uppbyggingu þeirra eins og kostur er en um leið tryggja að sem minnst af starfsemi þeirra hverfi til annarra landa. Þannig verður til fjölbreytt atvinnulíf á Íslandi sem skapar hagsæld og veitir viðnám gegn áföllum á einstökum sviðum efnahagslífsins.

Herra forseti. Ég legg til að málinu verði vísað til efnahags- og viðskiptanefndar til frekari umfjöllunar og vænti þess að það fái þar efnislega meðferð og síðar brautargengi hér í þingi.