151. löggjafarþing — 97. fundur,  18. maí 2021.

ættleiðingar.

692. mál
[21:58]
Horfa

Flm. (Silja Dögg Gunnarsdóttir) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ættleiðingar, nr. 130/1999, með síðari breytingum. Með mér á málinu eru hv. þingmenn Halla Signý Kristjánsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir og Þórarinn Ingi Pétursson. Greinargerðin er stutt og laggóð. Þetta eru í raun smávægilegar lagabreytingar en sanngjarnar að mínu mati og nauðsynlegar, kannski ekki fyrir fjöldann en fyrir þá sem eru í þessari stöðu skipta þessar breytingar mjög miklu máli. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á 2. og 25. gr. laga um ættleiðingar, nr. 130/1999, með síðari breytingum. Í breytingunni felst að einstaklingur sem hefur verið í sambúð eða hjúskap við annað foreldrið en síðar slitið samvistum við það geti óskað eftir að ættleiða barnið án þess að lagatengsl rofni við hitt foreldrið. Einnig er lögð til heimild til að ættleiða barn eða kjörbarn einstaklings sem hefur fallið frá. Hér er um að ræða að sá sem ættleiðir kemur í stað annars foreldris, þ.e. að barn hafi eftir ættleiðingu lagatengsl við tvo aðila.

Markmið frumvarpsins er að tryggja að umsækjandi sem alið hefur upp barn geti fengið ættleiðingarleyfi þrátt fyrir að hafa slitið sambúð eða hjónabandi við foreldrið. Eins og staðan er nú getur einstaklingur sem alið hefur upp barn í fjölda ára ekki sótt um að ættleiða það barn ef viðkomandi hefur slitið sambúð eða hjónabandi við hitt foreldrið. Mögulega eiga þessir einstaklingar önnur börn saman og sá sem óskar eftir ættleiðingunni vill tryggja að barn sem hefur alist upp hjá viðkomandi hafi sömu réttindi og önnur börn hans. Samkvæmt núgildandi lögum getur einstaklingur sem óskar eftir að ættleiða barn sem alist hefur upp hjá umsækjanda sótt um ættleiðingu sem einstaklingur, samanber 4. mgr. 2. gr., en það hefur þau réttaráhrif að lagatengsl við báða blóðforeldra rofna.

Hæstv. forseti. Ég hef lokið máli mínu. Það er langt liðið á þingveturinn en ég vona að okkur gefist tími til að taka málið fyrir í nefnd og mögulega að afgreiða það hér í þingsal fyrir sumarið.