Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, nr. 23/2013, viðskiptaboð. Flutningsmenn eru tveir en auk þess sem hér stendur er það hv. þm. Brynjar Níelsson.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um Ríkisútvarpið, nr. 23/2013, sem fela í sér takmarkanir á fyrirkomulagi auglýsinga Ríkisútvarpsins. Markmið frumvarpsins er að jafna samkeppnisstöðu einkarekinna fjölmiðla gagnvart ríkisreknu fjölmiðlafyrirtæki. Með 2. gr. frumvarpsins er lagt til nýtt bráðabirgðaákvæði þar sem lagt er til að fyrst í stað verði Ríkisútvarpinu óheimilt að stunda beina sölu á auglýsingum, hlutfall auglýsinga megi ekki fara yfir fimm mínútur á hvern klukkutíma í útsendingartíma, óheimilt verði að slíta í sundur dagskrárliði með auglýsingum og að lokum er lagt til að kostun verði bönnuð, samanber 2. gr. frumvarpsins. Takmarkanir þessar verði á tímabilinu 1. janúar 2022 til og með 31. desember 2023. Samkeppnisrekstri Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði verði síðan hætt í byrjun árs 2024, samanber 1. gr. frumvarpsins.
Með því að taka Ríkisútvarpið út af samkeppnismarkaði auglýsinga í tveimur skrefum gefst stjórn Ríkisútvarpsins tækifæri til að aðlaga rekstur að breyttum aðstæðum. Sé það talið nauðsynlegt að koma til móts við ríkisfyrirtæki vegna lægri nettótekna hefur fjárveitingavaldið ágætt svigrúm til þess. Flutningsmenn telja að með því að Ríkisútvarpið verði dregið út af samkeppnismarkaði auglýsinga og kostunar fái fyrirtækið aukið svigrúm til að sinna því menningarlega hlutverki sem því er ætlað samkvæmt lögum.
Um það verður vart deilt að frjáls fjölmiðlun á Íslandi stendur höllum fæti. Á sama tíma og samkeppnisstaðan er skekkt með lögverndaðri yfirburðarstöðu Ríkisútvarpsins standa einkareknir innlendir fjölmiðlar frammi fyrir harðri sókn alþjóðlegra stórfyrirtækja inn á auglýsingamarkaðinn. Frjálsir fjölmiðlar eru forsenda opinnar lýðræðislegrar umræðu og veita stjórnvöldum, atvinnulífinu og helstu stofnunum samfélagsins nauðsynlegt aðhald.
Stofnanir og fyrirtæki ríkis og sveitarfélaga eru víða í samkeppni við einkaaðila. Vísbendingar eru um að opinberir aðilar, ekki síst opinber hlutafélög, hafi hert samkeppnisrekstur sinn á síðustu árum. Þegar hið opinbera keppir við einkarekstur er mikilvægt að tryggja jafnræði með eins góðum hætti og kostur er. Reglur verða að vera skýrar og afmarkaðar um umfang opinbers samkeppnisrekstrar. Umsvif opinberra aðila á samkeppnismarkaði geta leitt til skaðlegrar fákeppni, rutt sjálfstæðum rekstri út af markaði og jafnvel leitt til einokunar og í þessu tilfelli þá ríkiseinokunar. Undir slíkum aðstæðum er nýjum aðilum gert erfiðara fyrir að hasla sér völl á markaði. Leiða má rök að því að samkeppnisrekstur hins opinbera geti unnið gegn markmiðum samkeppnislaga, sem er að efla virka samkeppni í viðskiptum.
Opinberir aðilar njóta oft forskots á grundvelli laga í samkeppni við einkaaðila. Dæmi um þetta er fjölmiðlarekstur ríkisins undir hatti Ríkisútvarpsins ohf. Augljóst er að samkeppnisrekstur ríkisins hefur verulega neikvæð áhrif á rekstur og fjárhag sjálfstæðra fjölmiðla sem flestir standa höllum fæti. Takmörkun á umsvifum og síðar bann við samkeppnisrekstri á sviði auglýsinga og kostunar ætti að öðru óbreyttu að bæta hag sjálfstæðra fjölmiðla, styrkja rekstrargrunn þeirra, gera umhverfi þeirra heilbrigðara.
Samkvæmt ársreikningi Ríkisútvarpsins 2019 námu tekjur af samkeppnisrekstri um 2,2 milljörðum kr. Óvarlegt er að ætla að þær tekjur sem ríkisfyrirtækið hefur haft af sölu auglýsinga og kostunar komi óskertar í hlut sjálfstætt starfandi fjölmiðla eftir 1. janúar 2024. Þó má ætla að tekjur sjálfstæðra fjölmiðla aukist verulega og mun meira en gert er ráð fyrir í frumvarpi mennta- og menningarmálaráðherra um ríkisstuðning við einkarekna fjölmiðla, sem er mál 367 á yfirstandandi löggjafarþingi.
Flutningsmenn telja að skynsamlegra sé að styrkja stöðu einkarekinna fjölmiðla með því að takmarka verulega samkeppnisrekstur ríkisins fremur en að koma upp flóknu kerfi millifærslna og ríkisstyrkja. Slíkt stuðlar að auknu heilbrigði á fjölmiðlamarkaði.
Herra forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að málið verði sent til allsherjar- og menntamálanefndar til umfjöllunar.