ný velferðarstefna fyrir aldraða.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það hefur harla lítið breyst hér í öldrunarmálum í 30 ár. Það er bara þannig ef við horfum til þeirra samfélagsbreytinga sem átt hafa sér stað. Við gripum til dýrasta valkostsins allt of snemma, að byggja stofnanir, að vista fólk á stofnun, langt um aldur fram í allt of mörgum tilvikum. Hér er ekkert nýtt undir sólinni. Hér þurfa verkin að tala. Þessi starfshópur sem hv. þingmaður bendir á er ekki fyrsti starfshópurinn sem settur hefur verið á laggirnar til að vinna að umbótum í öldrunarþjónustu. En við þurfum að þora að fara upp úr hjólförunum núna og á næstu árum. Það er rétt að við veitum ýmiss konar öldrunarþjónustu og hún lánast stundum mjög vel, í öðrum tilvikum er hún brotakennd og henni vex ekki fiskur um hrygg, því miður, þrátt fyrir að hlutfall aldraðra vaxi í samfélaginu. Með aukinni velferðartækni stöndum við nokkurn veginn í sömu sporum. Við erum ekki að boða það að hér sé verið að finna alveg nýtt hjól undir nýjan vagn, það er langt frá því. En það hafa nokkrir starfshópar verið í gangi og unnið að ýmsum málefnum og í lögum eru ákvæði sem ekki er staðið við. Þessu þurfum við að fara að breyta.