aðgerðir gegn atvinnuleysi.
Herra forseti. Við sjáum nú út úr erfiðum tímum og maður skynjar aukna bjartsýni og eftir alþjóðlegt áfall er hvert ríkið á fætur öðru að fara að snúa blaðinu við og við erum líka að fara að undirbúa viðspyrnu og uppsveiflu. Ég held að við hæstv. ráðherra hljótum að vera sammála um það að fólk og fyrirtæki verða að vera í sem bestu formi þegar þau fara á ráslínuna. En þau sem misstu vinnuna og urðu fyrir miklu tekjufalli vegna ástandsins þurfa tilhlaup. Hlutfall starfandi fólks af mannfjölda hér hefur aldrei mælst jafn lágt og í ár og atvinnuleysi er heimilunum og samfélaginu mjög kostnaðarsamt. Mig minnir að hvert prósentustig kosti ríkissjóð 6 milljarða kr. árlega. Það er því afar mikilvægt að ná hratt niður atvinnuleysinu en líka að þau sem báru þyngstar byrðarnar komist hratt af stað. Þar finnst okkur í Samfylkingunni skorta ýmislegt upp á og þess vegna lögðum við fram viðbótartillögur til að styðja við aðgerðir ríkisstjórnarinnar frá síðustu viku, sex ný úrræði sem styðja við atvinnuleitendur og auðvelda fyrirtækjum að ráða til sín fólk í vinnu. Krónur sem við verjum núna í þetta munu fljótt skila sér, margfalt, m.a. í bættum rekstri.
Ein aðgerðin sem við lögðum til er skattafsláttur fyrir fólk sem snýr aftur til starfa eftir atvinnuleysi sem felst í því að einstaklingur fái tvöfaldan persónuafslátt í jafn marga mánuði og viðkomandi var atvinnulaus. Aðgerðin er tímabundin og helst í hendur við aðrar aðgerðir, m.a. um lengingu ráðningarstyrkja og aðrar atvinnuskapandi tillögur. Þess vegna spyr ég hæstv. fjármálaráðherra hvort hann telji mögulegt að ná samkomulagi um þessar viðbótaraðgerðir til að tryggja að allir verði í sem bestu formi þegar lagt verður af stað frá ráslínunni.