aðgerðir gegn atvinnuleysi.
Virðulegi forseti. Ég skal sannarlega kynna mér tillöguna og ég fagna því að við getum dýpkað umræðuna með því að ræða þetta með gagnrýnum hætti, ég bið ekki um neitt annað en að við eigum opið, heiðarlegt samtal og er alveg opinn fyrir uppbyggilegri gagnrýni á það sem við höfum lagt til. En ég vek athygli á því að við höfum náð mjög miklum árangri nú þegar og við sjáum ekki þá erfiðu stöðu heimilanna sem maður hafði áhyggjur af. Það var ekki sjálfgefið. Ég held að Seðlabankinn hafi leikið mjög stórt hlutverk í því með því að grípa snemma inn í og búa til svigrúm fyrir fjármálakerfið til að standa með heimilum og fyrirtækjum og aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafi síðan komið í kjölfarið og samhliða reyndar af því að við stigum strax inn í þessa mynd með frestun gjalddaga og öðrum slíkum aðgerðum. Seðlabankinn, ríkisstjórnin, Alþingi og fjármálakerfið hafa því staðið með heimilunum eins og þurfti.