151. löggjafarþing — 99. fundur,  20. maí 2021.

skerðingar í almannatryggingakerfinu.

[13:19]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Þann 25. febrúar sl. sagði hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra Bjarni Benediktsson orðrétt, með leyfi forseta:

„Ég tel að það sé full ástæða fyrir okkur til að vera mjög stolt af því gríðarlega öfluga félagslega öryggisneti sem almannatryggingar á Íslandi eru þar sem við setjum í dag út meira en 10% af öllum útgjöldum ríkissjóðs til að standa með fólki sem ekki hefur nægilega mikið á milli handanna. Það er gríðarlega merkilegt kerfi sem hefur verið að þróast í rétta átt. Aukningin sem hv. þingmaður nefnir hefur kostað ríkissjóð tugi milljarða á undanförnum árum, u.þ.b. 30 milljarða, bara í ellilífeyriskerfin — 30 milljarða aukning á ársgrundvelli frá 2015. Þannig að já, ég held að við eigum að vera stolt af því. […] Hvaðan eiga peningarnir að koma? Í augnablikinu erum við að reka ríkissjóð með yfir 300 milljarða halla. Hv. þingmaður talar um það sem eitthvert reginhneyksli að við setjum ekki tugi milljarða til viðbótar út í bætur til fólks.“ — Þær hafi hækkað um næstum helming síðustu ár.

Virðulegur forseti. Mér barst nýlega svar við fyrirspurn minni til hæstv. félags- og barnamálaráðherra um skerðingar í almannatryggingakerfinu sem sýnir fram á að skerðingarnar hafa aukist um nær 5 milljarða á ári hverju. Var hæstv. fjármálaráðherra með þessar skerðingar í dæmi sínu og vissi hann þá upp á hár að það væri verið að tala um nær sömu upphæð í báðum málum? Þegar hæstv. fjármálaráðherra segist vera stoltur af þeim 30 milljörðum sem hann setti kerfið er hann þá jafn stoltur af því að hafa náð nærri sömu upphæð með auknum skerðingum? Af hvoru er hann meira stoltur, upphæðinni sem hann setti í almannatryggingakerfið eða auknum skerðingum þar sem hann náði nærri sömu upphæð út úr kerfinu?