151. löggjafarþing — 99. fundur,  20. maí 2021.

skerðingar í almannatryggingakerfinu.

[13:21]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Þessi framsetning stenst auðvitað enga skoðun. Í fyrsta lagi: Hvaða skerðingartillögur er hv. þingmaður að vísa til að ég hafi komið með fyrir þingið? Ég hef ekki komið með neinar slíkar tillögur. Er hv. þingmanni ekki ljóst að með óbreyttum skerðingarreglum þá gerist það hjá fólki sem hefur hærri og hærri tekjur, hærri og hærri framfærslu — fyrst og fremst er í tilviki ellilífeyrisþega um að ræða ellilífeyri almannatrygginga á móti lífeyrisgreiðslum — og þegar nýtt fólk kemur inn á ellilífeyrisaldur á ári hverju með betri og betri lífeyrisréttindi, þá hefur það áhrif á skerðingar? Skerðingarnar vaxa í einhverju hlutfalli við betri lífeyristekjur. Þetta er allt saman teiknað inn í kerfið og það þýðir ekki að við höfum verið að auka skerðingar. Við erum með sömu reglurnar en þetta eru áhrifin þegar fleiri og fleiri koma með betri réttindi inn á lífeyrisaldur. Mér er bara spurn: Vill hv. þingmaður að við látum útgjöld almannatrygginga vaxa með betri lífeyrisréttindum? Eftir því sem fólk hefur meiri lífeyrisréttindi þeim mun hærri eigi bæturnar að vera? Ég hélt það væri öfugt. Ég hélt að það væri þannig að við ætluðum fyrst og fremst að nota almannatryggingakerfið til að standa með þeim sem hafa minna og eftir því sem við setjum meira út úr sameiginlegum sjóðum til fólks sem hefur mjög góðan lífeyri þeim mun minna verður til skiptanna fyrir þá sem hafa lítinn lífeyri.