151. löggjafarþing — 99. fundur,  20. maí 2021.

skerðingar í almannatryggingakerfinu.

[13:23]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra svörin. Það virðist vera bara alger tilviljun að það séu nokkurn veginn sömu upphæðirnar sem eru lagðar inn í kerfið og aukast í skerðingum. Það sem er kannski merkilegast við þetta svar frá hæstv. ráðherra er t.d. með krónu á móti krónu skerðingar. Þær standa nákvæmlega í stað, eru sama tala í dag og við upphafið hjá ríkisstjórninni. Samt á að vera búið að minnka skerðinguna í 65 aura á móti krónu.

Eldri borgurum var lofað fyrir síðustu kosningar af hæstv. fjármálaráðherra að dregið yrði verulega úr skerðingum í almannatryggingakerfinu. Er það að draga verulega úr skerðingum í almannatryggingakerfinu að auka þær um 20, 30 milljarða, 5 milljarða á ári? Er það að draga verulega úr skerðingum?

Ég verð bara að spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig í ósköpunum fór hann að því að draga verulega úr skerðingum á sama tíma og þær hafa hækkað um 5 milljarða á hverju einasta ári sem hann hefur verið fjármálaráðherra?