151. löggjafarþing — 99. fundur,  20. maí 2021.

skerðingar í almannatryggingakerfinu.

[13:24]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég veit ekki hvað hv. þingmaður á við þegar hann talar um að það sé verið að auka við skerðingar í sama hlutfalli og bætur eru hækkaðar, þ.e. heildargreiðslurnar vaxa. Nú er það þannig að við erum að tala um raunverulegar krónur sem fara úr ríkissjóði í gegnum almannatryggingakerfið til fólks að teknu tilliti til skerðinga. Eftir allar skerðingar eru heildargreiðslurnar að vaxa. Þannig að það uppgjör sem hv. þingmaður býður hér upp á, að þetta hafi verið 5 milljarðar á móti 5 milljörðum sem mætast í núlli, gengur bara ekki upp, því miður. Er hv. þingmaður að gefa í skyn að króna á móti krónu skerðingin sé óbreytt eða hvað? Ég átta mig ekki á þessu. Þetta er reyndar mál sem heyrir undir annan ráðherra. Mér finnst hv. þingmaður með þessum áherslum sínum vera hér að tala fyrir þá sem hafa það best á lífeyrisaldri vegna þess að hann grætur hverja krónu sem er skert til að við getum gert betur við þá sem hafa minnst.