151. löggjafarþing — 99. fundur,  20. maí 2021.

endursendingar hælisleitenda.

[13:32]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Við erum framarlega meðal þjóða þegar kemur að því að láta kerfið virka vel. Við tókum á móti fleirum hlutfallslega en nágrannalöndin okkar í fyrra en það koma líka fleiri umsóknir hér hlutfallslega en til landa í kringum okkur. Við höfum líka náð málsmeðferðartímanum niður sem hefur verið vandi síðustu ár þar sem fólk hefur beðið allt of lengi eftir niðurstöðu sinna mála. Ekkert mál er nú hjá Útlendingastofnun eldra en 110 daga gamalt. En það er gríðarlega stór hópur í heiminum í neyð og þeir aðilar sem hafa fengið vernd í öðru Evrópuríki, sem við eigum í samstarfi við um þennan málaflokk, eru einfaldlega ekki í sömu neyð, eru í minni neyð en 90% af þeim sem eru á flótta. (Forseti hringir.) Ef við ætlum að gera betur fyrir þennan viðkvæma hóp sem þar er þá eigum við líka að einblína á þá sem eru í mestu neyðinni og ættu erfitt með að komast hingað sjálfir.