efnahagsmál.
Herra forseti. Ég vil enn einu sinni ræða við hæstv. fjármálaráðherra um mikilvæg atriði varðandi stöðu efnahagsmála og horfur þegar líður að lokum þings og kjörtímabils.
Er það rétt að verðbólga sé langt yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans? Er það rétt að verðbólga hafi vaxið meira á Íslandi á undanförnum misserum en í helstu viðskiptalöndum okkar? Er það rétt að óvenjumargt ungt fólk hafi sótt inn á fasteignamarkaðinn að undanförnu? Er það rétt að fasteignaverð hafi hækkað snarpt undanfarið? Er það rétt að vextir séu að hækka og muni hækka á næstu árum? Er það rétt að vaxtahækkanir muni hafa veruleg áhrif á greiðslubyrði fasteignakaupenda á næstu misserum? Er það rétt að drög að fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar geri ráð fyrir a.m.k. 50 milljarða afkomubætandi ráðstöfunum á næstu árum og að það feli í sér annaðhvort skattahækkanir eða niðurskurð? Er það rétt að atvinnuleysi sé meira hér en það hefur verið um langt árabil? Er það rétt að atvinnuleysi hafi aukist hlutfallslega mest hér á landi miðað við helstu viðskiptalönd okkar? Er það rétt að atvinnuþátttaka sé hér minni en við höfum séð?
Herra forseti. Þetta eru nokkrar einfaldar spurningar sem fjalla um mjög alvarlega stöðu í efnahagsmálum sem eru einkennandi fyrir Ísland ef horft er til samkeppnislanda. Ég vænti þess að hæstv. fjármálaráðherra svari með einföldum og skýrum hætti.