efnahagsmál.
Virðulegi forseti. Hér fer hv. þingmaður yfir nokkur atriði sem mig grunar nú að hann hafi góðar upplýsingar um úr umfjöllun fjölmiðla og frá viðkomandi stofnunum sem fjalla um verðbólgu og aðra slíka hluti. En mig langar að segja aðeins varðandi verðbólguna að auðvitað eru það vonbrigði að sjá hækkun hennar og þörf fyrir hækkanir vaxta sem Seðlabankinn hefur nú gripið til. En samanburðurinn við lönd þar sem verðbólga er engin og vextir eru jafnvel neikvæðir, t.d. fyrir innlánsreikninga, er ekki góður. Það er ekki draumaástandið sem við erum að sækjast eftir enda er verðbólgumarkmiðið okkar ekki 0%. Það er 2,5%. Verðbólgumarkmiðið í þeim löndum þar sem verðbólga er engin er ekki heldur engin verðbólga. Það er ekki heilbrigðismerki á hagkerfum að fólk geti ekki fengið neina vexti fyrir innlán sín og það mælist enginn þróttur í hagkerfinu. Að þessu leytinu til erum við á margan hátt á betri stað en aðrar þjóðir. Ef við skoðum hvort það sé rétt að fólk hafi náð að viðhalda kaupmætti sínum á árinu 2020 þrátt fyrir allt, þá er svarið já; hvort það sé rétt að laun hafi verið að hækka meira á Íslandi, ekki bara á síðasta ári heldur mörg ár aftur í tímann, en í evruríkjunum, svo dæmi sé tekið, þá er svarið líka já. Það er rétt að kaupmáttur heimilanna hefur aldrei í sögunni verið hærri en í upphafi þessa árs.
Ég hef hins vegar áhyggjur af verðbólgu og það er meginhlutverk Seðlabankans að beita tækjum til að taka á móti henni. Ég vek athygli á því sem Seðlabankinn segir, að það muni reyna á það á komandi árum að ríkissjóður dragi úr stuðningsaðgerðum sínum til þess að ná að nýju jafnvægi í ríkisfjármálunum, það sé ein forsenda þess að hér komist aftur á heilbrigt jafnvægi í opinberum fjármálum. Og ætli menn sér að hafa væntingar (Forseti hringir.) um að vextir verði áfram lágir eins og þeir hafa verið undanfarin misseri þá er þetta ein af forsendunum.