151. löggjafarþing — 99. fundur,  20. maí 2021.

efnahagsmál.

[13:38]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir svörin. Hann svaraði öllum spurningum mínum játandi. Síðan tók hann að spyrja sjálfan sig spurninga sem koma ekki mínu máli við þar sem ég var að spyrja einfaldra spurninga sem hann hefur svarað.

Ég vil að síðustu spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvaða skilaboð hann vilji færa þeim sem hafa lagt aleigu sína í að festa sér húsnæði, þeim fjölskyldum sem glíma við hækkandi verðlag og þeim sem standa í atvinnurekstri eða þeim sem nú eru atvinnulaus eða hafa dregið sig af vinnumarkaði. Ég vil líka spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvort hann sé stoltur af því að hafa þurft að svara öllum spurningum mínum játandi og hvort hann sé ánægður með stöðu mála.

Ég vil að síðustu spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvort það hvarfli aldrei að honum að krónuhagkerfið valdi því að hann neyddist til að svara öllum þeim spurningum sem ég bar upp við hann játandi.