151. löggjafarþing — 99. fundur,  20. maí 2021.

fiskeldi.

265. mál
[16:23]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir ræðuna. Mér sýnist þessi breytingartillaga vera ansi áhugaverð, ég verð að segja það. Í ræðu þingmannsins skýrðist betur í mínum huga út á hvað tillagan gengur. Þingmaðurinn lauk máli sínu í seinna andsvari við hv. þm. Bergþór Ólason á að tala um litakortið sem legið hefur fyrir síðan 2003. Ég hélt að það væri einhvers konar lög um hvar ætlast væri til að menn væru með fiskeldi og hvar ekki. En eins og kom fram í máli þingmannsins er það í raun og veru ekki svo. Samt sem áður langar mig að spyrja þingmanninn hvort litakortið trufli nokkuð þá tillögu sem hér liggur fyrir.

Ég veit að hv. þingmaður er mikill áhugamaður um þessi mál og ég hef verið í atvinnuveganefnd þetta kjörtímabil og við höfum unnið að því máli sem núna liggur fyrir um lífmassa og því sem varð að lögum 2019. Þá var mikið verið að spyrja út í geldfisk og okkur var sagt að ræktun á geldfiski væri einhvers staðar svolítið langt inni í framtíðinni. Ég hef grun um að þingmaðurinn sé með einhverjar ferskari fréttir af því. (Forseti hringir.) Hann gæti kannski svarað því.