151. löggjafarþing — 99. fundur,  20. maí 2021.

fiskeldi.

265. mál
[16:25]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Fyrst vil ég ljúka því að svara fyrri ræðumanni, hv. þm. Bergþóri Ólasyni. Hann spurði hvort ég teldi stuðning við málið meðal nefndarmanna Sjálfstæðisflokksins í atvinnuveganefnd. Ég hef rætt þetta við þá. Nefndin treystir sér ekki til að taka málið upp sem breytingartillögu hjá sér með svo skömmum fyrirvara en ég hef heyrt á mönnum þar að vel komi til greina hjá þeim að styðja þetta mál enda er málið gott. Það gerir í rauninni ekkert annað en að ítreka þær kröfur sem við gerum á vísindalegum forsendum til þessarar mikilvægu atvinnugreinar.

Hér er spurt hvort kortið sem gefið var út 2003 trufli eitthvað þessa vinnu. Það gerir það ekki. Kortið hafði aldrei neinar lagalegar forsendur. Þetta voru meira einhverjar hugmyndir um að leyfa ætti laxeldi á þessum svæðum. Áhrifin þar eru farin að koma í ljós. Það hefur gengið alveg ótrúlega vel. Fjárfestingin er gríðarleg og þátttaka heimamanna er mikil í þessu. Þetta er auðvitað gjörbylting eins og ég veit að hv. þingmaður þekkir úr sínu kjördæmi, gjörbylting á þessum svæðum frá því sem áður var í atvinnulegu tilliti, félagslegu og byggðarlegu.

Hér er líka spurt um geldfiskinn og þróunina í honum. Það fer svolítið tvennum sögum af því. Ég er sammála hv. þingmanni í því að upplýsingarnar sem maður fær eru aðeins misvísandi. En menn sem hafa verið að vinna að skýrslu um þessi mál nýlega, sérfræðingar á þessu sviði, hafa sagt mér að þetta sé í raun í nærtíma. Þróunin er hröð í öllum þessum málum, öryggismálunum og út frá geldfiski. Auðvitað mun það gjörbylta greininni þegar hægt verður að framleiða geldfisk með sama hætti. Þó verður að hafa í huga (Forseti hringir.) að ekki nema innan við 5% af fiskinum sem slátrað er í dag eru í raun kynþroska. Allt annað sem er slátrað í sláturhúsum í sjókvíaeldi í dag er geldfiskur.