fiskeldi.
Virðulegur forseti. Eins og fram kom í ræðu minni áðan er tækniþróunin alveg gríðarleg á þessu sviði. Norðmenn hafa til að mynda áform um að fara úr eldi sem nemur um 1,3 milljónum tonna í 3 milljónir tonna. Við Íslendingar erum að tala um að fara í um 100.000 tonn. Verkefni sem kallað er Ocean Farm 1 er úthafsverkefni. Ég held að ég megi segja að þar sé búið að ljúka við smíði fyrstu stórkvíarinnar. Óneitanlega minna þær myndir sem maður sér af því verkefni á olíuborpalla. Þetta er þá staðsett langt úti í hafi og stenst allar þær kröfur sem þarf að gera til slíkra mannvirkja. Einnig hefur verið lokið við smíði á fyrsta skipinu, svokölluðum brunnbát, sem sækir lax í þessar kvíar og flytur í sláturstöð. Það eru skip sem taka 1.000 tonn af lifandi fiski í lestar. Þetta er þróun sem er í gangi og fyrstu verkefnin eru komin af stað. Færeyingar eru þátttakendur í þessu og Norðmenn eru leiðandi. Það segir okkur Íslendingum auðvitað hversu mikilvægt það er að vera þátttakendur í þessu, vera þátttakendur í því að fylgjast með þessu, vera þátttakendur í því að byggja þetta upp, að ætla ekki að verða einhverjir taglhnýtingar í þessu þegar fram í sækir. Við þurfum að mynda okkur markaði og við þurfum að þróa þetta. Með allri þeirri þekkingu og reynslu sem til er hjá fyrirtækjum sem framleiða alls konar tæki og búnað fyrir fiskvinnslu og fiskveiðar, og þau eiga mikið erindi inn í þetta samspil með okkur, höfum við örugglega mikið fram að færa á þessum vettvangi eins og annars staðar.
Þetta gerir kröfur til sveitarfélaganna. Hv. þingmaður vitnaði til uppbyggingarinnar og ég boða hér annað frumvarp á þessu þingi sem snýr að því að breyta gjaldtöku á fiskeldi (Forseti hringir.) þannig að hún renni meira til sveitarfélaganna. Uppbygging á vettvangi sveitarfélaganna er mjög ögrandi verkefni við þessar breyttu aðstæður og til þess þurfa þau (Forseti hringir.) að fá eðlilega gjaldtöku. Á sama tíma verður auðvitað að taka tillit til þess að mikilvægt og nauðsynlegt er að greinin búi við a.m.k. (Forseti hringir.) sambærileg skilyrði og gerist í nágrannalöndum okkar til að tryggja samkeppnishæfi hennar.