tekjuskattur.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti fyrir hönd efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt. Þetta er svokölluð milliverðlagning. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á 57. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, svo að skýrt verði að skjölunarskylda aðila nái einnig til viðskipta lögaðila við fasta starfsstöð sína. Að auki er lagt til að Skatturinn fái heimild til beitingar stjórnvaldssekta uppfylli skjölunarskyldur aðili ekki skyldur sínar.
Nefndin hefur raunar fjallað áður um málið, það var á 150. löggjafarþingi. Við umfjöllun nefndarinnar þá óskaði hún eftir minnisblaði frá Skattinum þar sem fram kæmi afstaða stofnunarinnar til tiltekinna atriða. Í minnisblaðinu er bent á að tilgangur eftirlits Skattsins með milliverðlagningu sé að tryggja að verðlagning í viðskiptum tengdra aðila yfir landamæri sé réttmæt og að sporna gegn alþjóðlegri skattasniðgöngu. Nefndin telur nauðsynlegt að slíkt eftirlit sé viðhaft. Í því sambandi bendir Skatturinn m.a. á að fullnægjandi skjölun leiði af sér að varðveitt séu öll gögn sem nauðsynleg eru við mat á verðlagningu, svo sem um ákvörðun vaxta í lánaviðskiptum, ákvörðun á verði á vörum og þjónustu, eða hverjum öðrum þeim viðskiptum milli tengdra aðila sem máli skipta.
Í 4. mgr. b-liðar 1. gr. frumvarpsins er kveðið á um fjárhæð sekta uppfylli aðili ekki skjölunarskyldu sína samkvæmt 1. málslið 5. mgr. 57. gr. Er lagt til að sektir geti numið allt að 3 millj. kr. fyrir hvert reikningsár. Geti sektarálagning lengst tekið til sex tekjuára sem næst eru á undan því ári er sektarákvörðun fer fram og hæst numið 12 millj. kr. Við fyrri framlagningu málsins, þ.e. á 150. löggjafarþingi, gat hámarksfjárhæð hæst numið 6 millj. kr. Er því í frumvarpinu lagt til að hámarkssektarfjárhæð verði umtalsvert hærri en við fyrri framlagningu málsins. Nefndin telur skynsamlegt að við lögfestingu sektarheimilda sé hófsemdar gætt en bendir einnig á að nauðsynlegt sé að endurskoða fjárhæðir með hliðsjón af fenginni reynslu. Leggur nefndin því til breytingu þess efnis að ákvæðið verði samhljóða því sem lagt var til í frumvarpinu á 150. löggjafarþingi.
Þá er vert að geta þess að í gildistökuákvæði 2. gr. frumvarpsins er þess sérstaklega getið að lögin taki til brota eða vanrækslu á skjölunarskyldu sem á sér stað eftir gildistöku laganna. Í greinargerð frumvarpsins segir að ákvæðið komi inn vegna ábendinga um að efni frumvarpsins gæti leitt til afturvirkni við gildistöku þar sem ríkisskattstjóra verði veitt sektarheimild sex ár aftur í tímann. Nefndin bendir á að það leiði m.a. af lögmætisreglu stjórnsýsluréttarins að lagaákvæðum sem mæla fyrir um heimild til beitingar stjórnsýsluviðurlaga verði almennt ekki beitt afturvirkt. Því verði ekki talin þörf á því að árétta sérstaklega í gildistökuákvæði að viðurlagaheimildir taki eingöngu til brota sem eiga sér stað eftir gildistöku laganna.
Til þess að gæta samræmis í löggjöfinni leggur nefndin því til að framangreind árétting falli brott. Tillagan hefur hins vegar enga efnislega breytingu í för með sér.
Nefndaráliti þessu fylgja síðan viðeigandi breytingartillögur.
Hv. þingmenn Jón Steindór Valdimarsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifa undir álit þetta með fyrirvara en undir álitið skrifa hv. þingmenn Óli Björn Kárason, Jón Steindór Valdimarsson, með fyrirvara eins og áður segir, Brynjar Níelsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, með fyrirvara, Smári McCarthy og Hjálmar Bogi Hafliðason.