151. löggjafarþing — 99. fundur,  20. maí 2021.

fasteignalán til neytenda.

791. mál
[17:20]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég ber fulla virðingu fyrir þessum sjónarmiðum hv. þingmanns, ekki síst vegna þess að hér er mál að koma inn með afbrigðum á dagskrá og seint á þessu þingvori. Mig langar til að reyna að bregðast við með því að segja að málið kemur til skoðunar í samskiptum fjármálaráðuneytisins og Seðlabankans. Því er ekki að leyna að við í fjármálaráðuneytinu höfum verið að fylgjast nokkuð grannt með þróun efnahagsmála, sérstaklega öllu því sem viðvíkur þróun verðlags í landinu og hvaða undirliggjandi þættir eru að valda þrýstingi. Þegar maður horfir yfir sviðið og sér að fasteignamarkaðurinn hefur verið að hækka umfram annað og er einn helsti drifkrafturinn á bak við aukna verðbólgu þá er ekki annað hægt en að halla sér aðeins aftur og spyrja sig: Hvað gæti komið að gagni við þessar aðstæður? Og þegar maður horfir yfir til þingsins annars vegar og Seðlabankans hins vegar staldrar maður að sjálfsögðu við atriði á borð við þjóðhagsvarúðartæki sem eru til staðar í lögum. Þegar þau eru síðan rýnd nánar kemur í ljós að þegar gengið var frá þessu tiltekna atriði sem varðar skuldsetninguna þá þykir okkur í fjármálaráðuneytinu sem við höfum lagt til of rúma heimild, jafnvel svo rúma að draga mætti í efa lagastoðina fyrir ákvörðun sem byggði á þessari heimild, að hægt væri að ákveða af Seðlabankanum að hlutfallið væri einhvers staðar á bilinu 0–100%. Hérna er gerð tilraun til að ramma þetta inn þannig að lagastoðin sé alveg örugglega skýr ef á þarf að halda.