fasteignalán til neytenda.
Forseti. Ég þakka fyrir þetta svar, það hjálpar aðeins. Ég er í pínu erfiðleikum. Þetta er snúið og ég efast ekki um að það eigi eftir að verða miklu skýrara þegar við tökum það fyrir í efnahags- og viðskiptanefnd. Hæstv. ráðherra talar um þá miklu bólumyndun eða þær miklu verðhækkanir sem við sjáum á fasteignamarkaði. Ef maður skoðar Vesturlönd almennt, Case-Shiller kvarðann og álíka, er þessi þróun bara frekar almenn og víðtæk í heiminum. Ég skil samt alveg að verkfærin til þess að bregðast við miklum og skyndilegum hækkunum þurfi að vera í góðu lagi. Eftir stendur að ég átta mig ekki almennilega á því hvort einhverjir tilteknir aðilar séu líklegir til að geta ekki fjármagnað fasteignalán eða muni jafnvel eiga auðveldara með það ef þetta fer gegn. Það er kannski fyrsta atriðið.
Síðan er hitt atriðið. Nú sagði ráðherra hæstv. í upphafsræðu sinni að ekki væri verið að boða að þessi verkfæri yrðu notuð. Er verið að horfa fram á að það séu verkfæri til fyrir sumarið ef þetta skyldi einhvern veginn fara úr böndunum þá? Eða hvernig er tímaramminn? Myndi t.d. vera alvarlegur skaði af því ef þetta færi ekki í gegn fyrr en kannski bara í haust eða jafnvel eftir kosningar? Og síðan kannski síðasta spurningin: Var þetta mál á þingmálaskrá ráðherra?