151. löggjafarþing — 100. fundur,  25. maí 2021.

flugvallarstæði í Hvassahrauni.

[13:39]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið en verð að lýsa miklum vonbrigðum með það. Til að svara spurningunni um hvort þetta sé skynsamlegt þá er það það alls ekki. Ekki þarf annað en að kveikja á sjónvarpinu til að átta sig á að áhættumatið er að þróast með mjög afgerandi hætti í þessu máli. Ég er mjög áhyggjufullur yfir því að hæstv. ráðherra flaggi strax mögulegum töfum á þessari niðurstöðu vegna þess að á sama tíma er verið að búta Reykjavíkurflugvöll í sundur. Rekstrarskilyrði hans versna jafnt og þétt þannig að markmiðið blasir við; að gera hann óstarfhæfan. Það er því ekkert hægt að hafa það sem einhvers konar grín hvort ekki sé skynsamlegt að sjá hvort áhættumatið verði ekki með einhverjum hætti þegar það blasir við í sjónvarpi dags daglega að það er að gjósa þarna. Á sama tíma eru skipulagsyfirvöld í Reykjavíkurborg að skemma Reykjavíkurflugvöll, flugvöllinn í Vatnsmýrinni þar sem flugið á að vera þar til annar jafn góður eða betri flugvallarstaður er fundinn. Sá flugvallarstaður er ekki í Hvassahrauni. Það blasir við öllum. (Forseti hringir.) Það stenst bara enga skynsemisskoðun. Þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra: Ætlar hann að stöðva þessar rannsóknir þannig að hægt sé (Forseti hringir.) að bregðast við stöðunni í Vatnsmýrinni í dag eða á morgun? Það er eina raunverulega spurningin sem þarf að svara.