tekjuskattur.
Herra forseti. Hér er um að ræða mál sem þingið er búið að vandræðast með lengi, hefur verið sent aftur í ráðuneytið og komið til baka lítið breytt. Það hefur reyndar tekið breytingum núna í þetta skiptið. Álit meiri hlutans er ágætt, það er til bóta. Nefndin hefur gert úrbætur á þessu máli og þær birtast m.a. í nefndaráliti og breytingartillögum við málið. Því mun ég styðja breytingartillögurnar. Málið í heild sinni er þó enn gallað og til að mynda er ekki tekið tillit til athugasemda og aðvarana skattrannsóknarstjóra sem að mínu mati hefði þurft að bregðast betur við og raunar vinna frumvarpið á allt annan hátt í samræmi við þær ábendingar. Því greiði ég ekki atkvæði um málið í heild.