loftferðir.
Herra forseti. Ég ætla að byrja á því líkt og allir sem koma hingað og taka til máls að segja að ég ætla ekki að lengja umræðuna. En ég get að ýmsu leyti tekið undir það sem hv. þm. Bergþór Ólason sagði hér áðan. Það má alveg ræða hvort þörf er á þessu máli núna í stöðunni. Þetta er jú eitthvað sem hv. umhverfis- og samgöngunefnd fékk í hendurnar fyrir páska og síðan hafa hlutir gerjast ansi mikið. Það hefur verið þróun í jákvæða átt í heilsu þjóðar út frá bólusetningarferlinu og það hefur líka verið þróun í jákvæða átt út frá því hvernig þetta mál vannst í meðförum nefndarinnar. Ég verð að hrósa hv. framsögumanni fyrir að hafa tekið þann pól í hæðina að vinna saman það meirihlutaálit sem lá fyrir og síðan minnihlutaálit sem undirrituð vann með stuðningi Samfylkingar og Pírata í nefndinni, hv. þingmanna Guðjóns S. Brjánssonar og Andrésar Inga Jónssonar. Þar með var málið orðið þess eðlis að sú sem hér stendur gat samþykkt það fyrir hönd Viðreisnar.
Hvað varðar hins vegar það hvort við ættum að sleppa þessu þá verð ég eiginlega að nota tækifærið og segja eitt: Við stöndum frammi fyrir því að stór hluti þjóðarinnar hefur verið bólusettur og við stöndum frammi fyrir því að það er aukin ásókn ferðamanna til að koma til landsins og það er jákvætt. Eftir situr að stór hluti þjóðarinnar er á þeim aldri sem er líklegur til að eiga ekki hvað síst samskipti við ferðamenn, ungt fólk sem ekki hefur fengið bólusetningu enn. Það er þess vegna sem ég tel að það sé þrátt fyrir allt mikilvægt að klára þetta mál. Við erum búin að koma í veg fyrir að Íslendingum verði bannað að koma til landsins geti þeir ekki sýnt fram á bólusetningu eða vottorð líkt og var lagt var af stað með. En ferðamenn tel ég enn þá vera í þeirri stöðu að það sé rétt að fara fram á að þeir geti sýnt fram á slíkt í ljósi þess að þrátt fyrir allt er stór hluti þjóðarinnar enn ekki bólusettur. Þannig að við styðjum þetta mál.