151. löggjafarþing — 100. fundur,  25. maí 2021.

breyting á þingsályktun nr. 40/150 um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020-2024.

802. mál
[15:38]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. formanni umhverfis- og samgöngunefndar fyrir ræðuna. Mig langar í framhaldi af þessari umræðu og þeirri stöðu sem upp er komin með Egilsstaðaflugvöll að spyrja formann samgöngunefndar, en við höfum setið saman fundi sem Isavia hefur komið á: Finnst formanninum ekki merkilegt að Isavia, sem fer þó með allar eignir á flugvellinum og á að vera þar öllum hnútum kunnugt, hafi ekki flaggað þessu fyrir ári þegar við vorum að ræða málið og voru með það á dagskrá? Raunin var að þótt Isavia hafi komið ítrekað fyrir nefndina kom ekkert fram í þeim heimsóknum um að þetta langan tíma þyrfti til undirbúnings fyrr en nú á vormánuðum 2021. Eins upplifði ég heimsóknir fulltrúa Isavia síðasta ár þannig að malbikunarframkvæmdin á Egilsstaðaflugvelli væri á margan hátt ekki eins brýn og hún er og heimamenn höfðu ítrekað nefnt við mig, t.d. á síðasta ári og árið þar á undan. Það kom aldrei beint fram fyrir nefndinni á síðasta ári. Ég man ekki nákvæmlega orðalagið sem við settum í nefndarálit sem við stóðum saman að, flest úr nefndinni, fyrir ári síðan um að Isavia sæi um þá framkvæmd. Þá var ekkert endilega verið að tala um árið í ár, jafnvel tveggja ára töf á því.