opnun þingpalla.
Forseta er ánægja að geta greint frá því, í viðbót við þær breytingar sem boðaðar voru á sóttvarnaráðstöfunum hér innan þings í gær, að nú er að nýju hægt að opna þingpalla Alþingis. Fyrst um sinn verður þó eingöngu hægt að taka á móti tíu manns í einu og verða allir sem sitja á pöllunum að nota grímur. Þingpallar Alþingis hafa verið lokaðir frá 12. mars á síðasta ári af óumflýjanlegum ástæðum og á sama tíma hafa gestir ekki mátt koma í Alþingishúsið eins og kunnugt er vegna kórónuveirufaraldursins þannig að þetta er ánægjuleg þróun mála sem nú er hægt að upplýsa um.