151. löggjafarþing — 101. fundur,  26. maí 2021.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

768. mál
[13:47]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við erum að fara að greiða atkvæði um mjög gott mál í sambandi við nýtingu séreignarsparnaðar. Upp hefur komið sú staða að einstaklingur sem dottið hefur út af vinnumarkaði getur ekki nýtt sér þetta vegna þess að hann fær ekki mánaðarlegan séreignarsparnað. Öryrkjar og atvinnulausir eru í þeirri stöðu. Þetta eru örfáir einstaklingar og ef þeir vilja gera þetta ætti að leyfa þeim það, sérstaklega þar sem reiknað var með 65–88 milljörðum í þetta en aðeins hafa 35 milljarðar skilað sér. Við ættum því ekki að slá á puttana á þeim sem vilja nýta sér þetta. Það er ekki stór hópur og ekki háar upphæðir. Ég myndi vilja að málið væri tekið fyrir í nefnd fyrir 3. umr. og greidd atkvæði um það.