151. löggjafarþing — 101. fundur,  26. maí 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[13:51]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Samkomulag er um að talsmenn flokkanna í fjárlaganefnd, þar á meðal áheyrnarfulltrúi, hafi allt að 45 mínútur í framsöguræðum sínum í umræðunni í dag. Einnig hefur forseti fallist á að rýmka andsvararétt þannig að eftir framsöguræðu framsögumanns meiri hluta fjárlaganefndar geti allir stjórnarandstöðuflokkar komist að og geti veitt andsvör og hafa þá eina mínútu í senn.