151. löggjafarþing — 101. fundur,  26. maí 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[14:37]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Birgir Þórarinsson) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni og formanni fjárlaganefndar, Willum Þór Þórssyni, fyrir ræðu hans hér, ágætisræðu. Ég vil tímans vegna víkja strax að fyrirspurninni í þessu sambandi. Það er athyglisvert að skoða umsögn fjármálaráðs þegar kemur að tekjuöflun ríkissjóðs og veikleikum í afkomu. Ráðið getur þess að veikleikar í afkomu hafi verið ljósir og illa hafi gengið að halda fjármálaáætlunum innan ramma stefnumiða, jafnvel í uppsveiflu. Það er alveg ljóst að þetta er nokkuð augljós ofanígjöf frá fjármálaráði til ríkisstjórnarinnar. Ég hefði gjarnan viljað fá viðbrögð hv. þingmanns við þeim athugasemdum fjármálaráðs.