fjármálaáætlun 2022--2026.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir að draga þetta fram. Ég tek heils hugar undir með fjármálaráði og við höfum lagt okkur fram um að grípa þessar ábendingar fjármálaráðs. Ég er sammála fjármálaráði að því leytinu til og vona að við getum bætt úr á komandi árum almennt í fjárlagavinnu, í áætlunum, stefnuáætlunum og fjárlögum að því leyti að svigrúmið sé í stefnunni og festan í áætlunum. Það skal bara viðurkennast að það mátti lítið út af bregða þegar hér varð loðnubrestur tvö tímabil í röð og flugfélag fór á hausinn og það dró úr eftirspurn í ferðaþjónustu. Þá vorum við í kófi stefnunnar og fórum ekki réttum megin við núllið miðað við það sem áætlað var. Það endurspeglar eiginlega þann vanda sem fjármálaráð dregur fram. Og úr því eigum við að bæta.