151. löggjafarþing — 101. fundur,  26. maí 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[14:42]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Stjórnarflokkarnir og ríkisstjórnin eru búin að samþykkja stefnu í öllum málasviðum og gerðu það í desember. Sú áætlun sem við ræðum hér er uppfærsla á tölum, en auðvitað eru á bak við þessar tölur fólk, sjúklingar, börn o.s.frv., þ.e. fólkið í landinu, þannig að þær skipta sannarlega máli og það þarf að máta þær yfir á málasviðin og það sem fram undan er. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur líklegt að flest ríki Vesturlanda nái að koma á jafnvægi í ríkisfjármálunum um miðjan áratuginn og ekki verði þörf á að hækka skatta á almenning eða skera niður opinber gjöld. Hæstv. ríkisstjórn vill hins vegar gera það og byrja strax að skera niður og hækka skatta eftir eitt og hálft ár þegar áætlanir gera ráð fyrir atvinnuleysi upp á 6–7%. (Forseti hringir.) Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann telji þetta ekki of harkalega aðgerð og hún komi of snemma.