fjármálaáætlun 2022--2026.
Forseti. Aðeins til að útskýra betur það sem ég sagði áðan þá er allt í lagi að ríkisstjórnin segi: Við erum hætt að leggja fram stefnu. Hér er sama stefnan aftur, uppfærð. En ég gagnrýni að sjálfsögðu líka stefnuleysi stjórnvalda í þessu ástandi, bara til að leggja áherslu á muninn þar á. Mér finnst ámælisvert að stuðst sé við sömu stefnu þrátt fyrir að það sýni sig að hún skili t.d. ekki árangri í atvinnumálum. En það hefur verið gripið til nokkurra aðgerða fram að kosningum sem ættu að hafa jákvæð áhrif sem er bara fínt.
Hvað velsældarstefnuna varðar er hún gríðarlega góð nálgun á það hvernig við ættum að vinna opinber fjármál. Þetta er verkefni sem hefur verið hjá OECD mjög lengi, „wellbeing economy“, þýtt sem velsældarsamfélag. Hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson byrjaði strax að uppnefna það vesældarhagkerfi, fannst það einhvern veginn liggja svo rosalega beint við, svo líkt orðað. Það útskýrir ákveðið grunnskólaviðhorf gagnvart þeim rannsóknum sem liggja að baki þeirri aðferðafræði sem er í velsældarhagkerfinu. Þar eru settir mælikvarðar um það hvernig ná eigi árangri með opinberum fjármálum í atriðum sem skipta almenning máli, ekki bara í hagvexti og stærri köku. Hvernig er staðan á húsnæðismarkaði? Hvernig er staðan í heilbrigðiskerfinu? Hvernig er staðan í jafnvægi milli lífs og vinnu hjá fólki almennt? Hvernig hafa opinber fjármál áhrif á þessa mælikvarða? Að stjórnvöld hafi fyrir framan sig mælikvarða á það hvernig ástandið er á húsnæðismarkaði hefur áhrif á það (Forseti hringir.) hvernig stjórnvöld beita opinberum fjármálum til að ná árangri samkvæmt þeim mælikvörðum sem eiga að skila sér til almennings.