fjármálaáætlun 2022--2026.
Herra forseti. Miklar áskoranir eru fram undan þegar kemur að hagstjórn í landinu. Það blasir við mikill hallarekstur ríkissjóðs, atvinnuleysi er í hæstu hæðum, verðbólga ekki mælst hærri síðan 2013 og vaxtahækkunarferli er hafið. Mikill halli á ríkissjóði í einhver ár hefur margvíslegar neikvæðar afleiðingar fyrir þjóðarbúið og landsmenn alla. Ljóst er að skuldir ríkissjóðs halda áfram að aukast til muna á næstu árum. Þróun vaxta er lykiláhrifaþáttur þegar kemur að opinberum skuldum og eins og ég segi þá bendir allt til þess að vextir fari hækkandi. Tekjubætandi aðgerðum er ekki lýst í þeirri fjármálaáætlun sem ríkisstjórnin leggur hér fram. Auk þess þarf landsframleiðslan á næstu fjórum árum að aukast til að viðhalda þeim efnahagslegu lífsgæðum sem voru fyrir efnahagsáfallið í kjölfar veirufaraldursins. Það þarf að auka gjaldeyristekjur þjóðarbúsins, skapa þúsundir nýrra starfa. Hagvöxtur á Íslandi hefur verið sveiflukenndari en hjá nágrannaþjóðum okkar, enda hagkerfið lítið og opið. Áfall í okkar stærstu atvinnugrein, ferðaþjónustunni, hefur haft veruleg áhrif á hagvöxt og þróun hans.
Fjármálaáætlunin er sú síðasta sem þessi ríkisstjórn leggur fram. Hún er óvenjuleg að því leytinu til að gildandi fjármálaáætlun til fimm ára var samþykkt á Alþingi 17. desember sl. Sú stefnumörkun sem lá þá til grundvallar er efnislega óbreytt fyrir þau 35 málefnasvið og 103 málaflokka sem fjármálaáætlun tekur til og ekki lagðar til efnislegar breytingar á grunnsviðsmynd fjármálaáætlunar til næstu ára.
Hér er því í reynd ekki um hefðbundna fjármálaáætlun að ræða. Heildarramminn er á sínum stað en niðurbrotið úr hefðbundinni fjármálaáætlun er ekki birt. Útfærslu stefnunnar verðum við að sjá með skýrum hætti. Þessi fjármálaáætlun er því ekki sett upp eins og lögin segja til um. Það vantar stefnumótun málefnasviða með skýrum hætti. Það er í reynd aldrei mikilvægara en nú að þetta liggi ljóst fyrir. Áætlunin er ágætisefnahagsyfirlit en breytir ekki mikilvægi þess að leggja þetta allt fram, þ.e. allt sem á að fylgja samkvæmt lögum. Þannig að umræðan um þessa fjármálaáætlun snýst í raun bara um efnahagsmálin, ekkert um útfærslu málaflokkanna. Það er því veigamikill galli á þessari áætlun að henni skuli ekki fylgja fullgerð stefnumótun. Hér er fjármálaáætlun þar sem ákveðið er að taka málefnasviðin út og þar með taka það út sem ætti að vera andlag hinnar pólitísku umræðu.
Fjármálaáætlun til næstu fimm ára á að vera þjóðinni leiðarljós í efnahagsmálum. Leiðarljós út úr vandanum, út úr kreppunni. Þessi áætlun á að sýna okkur hvernig ríkisstjórnarflokkarnir sjá fyrir sér að tekið verði á þessum miklu áskorunum sem við stöndum frammi fyrir. Því miður skortir verulega á í þeim efnum. Í öðrum kafla áætlunarinnar er að finna fögur fyrirheit um að það verði enginn niðurskurður og þriðji kafli fjallar síðan um það að minnka skuldahlutfall ríkissjóðs, sem gengur þvert á sjónarmiðið um að jafna hagsveifluna.
Verðbólgan er í vexti og fylgjast þarf mjög vel með þróun hennar í þeim aðstæðum sem við erum í. Mikil verðbólga getur hafa verulega slæm áhrif fyrir heimilin í landinu og það eru teikn á lofti um að hún fari hækkandi. Ef efnahagslífið er kerfisbundið þanið þá veldur það óstöðugleika og stöðugt vaxandi verðbólgu. Hér þarf að feta hinn gullna meðalveg. Mikilvægt er að hið opinbera ýti ekki út einkafjárfestingum með umsvifum sínum á lánamarkaði og meira mætti fjalla um samspil fjármálastefnu og peningastefnu í þessari fjármálaáætlun.
Eins og ég nefndi hafa fjármálareglurnar verið settar til hliðar og vægi grunngildanna, þ.e. sjálfbærni, varfærni, stöðugleika, festu og gagnsæis, er sérstaklega mikilvægt í þessari fjármálaáætlun þar sem þessar fjármálareglur hafa verið settar til hliðar. Skortur er á áherslu á grunngildunum í framsetningu fjármálaáætlunar. Afleiðingar af tómlæti gagnvart grunngildunum getur veikt stefnumörkunina. Þegar það er mikil óvissa verða jafnvel vangaveltur um ólíkar leiðir að markmiðum mikilvægari en áætlunargerð til lengri framtíðar. Mikilvægt er að valkostir séu dregnir fram, fórnarskipti þeirra og önnur álitamál. Slíkt þjónar grunngildum laganna um opinber fjármál.
Lágir vextir, kaupmáttaraukning og sértækar Covid-19 aðgerðir hafa stutt við heimili og fyrirtæki. Efnahagsáfallið hefur þó fallið með ójöfnum hætti á ólíka hópa sem ekki allir hafa notið góðs af þeirri þróun.
Ég tel, herra forseti, að það skorti á raunsæi í forsendum um efnahagsbata í þessari áætlun. Áætlunin gerir ráð fyrir því að efnahagsbatinn nái fótfestu strax í ár, verði 2,6% á yfirstandandi ári, vaxi um 4,8% árið 2022. Síðan gerir framreikningur ráð fyrir 2,8% vexti í landsframleiðslu fram til ársins 2026. Störfum fari fjölgandi, bæði í ferðaþjónustu og öðrum geirum hagkerfisins. Frá sjónarhóli áætlunarinnar eru horfur jákvæðar og það er alltaf gott að vera jákvæður, ekki má gera lítið úr því, en það er hins vegar annað mál hvort þessi áætlun sé yfir höfuð raunsæ.
Lykilforsenda á bak við þann efnahagsbata sem lagt er upp með er að 720 þúsund ferðamenn komi til landsins á þessu ári með tilheyrandi vexti útflutningstekna. Dekkri horfur blasa við ef sú forsenda gengur ekki eftir. Komið hefur fram af hálfu ferðaþjónustunnar á fundi með fjárlaganefnd að þetta sé bjartsýni af hálfu stjórnvalda, að þessi spá um fjölda ferðamanna gangi eftir. Vöxtur ferðaþjónustunnar kann að verða grundvöllur efnahagsbata á næstu árum eins og boðað er í áætluninni en það er óraunhæft að gera ráð fyrir því að árin 2022 og 2023 komi hingað 2 milljónir ferðamanna. Raunsæi verður að ríkja í þeim efnum. Staðan í veirufaraldrinum í kringum okkur er með þeim hætti að ólíklegt er að þær væntingar gangi eftir.
Í áætluninni kemur fram að ef það verða tafir á komu ferðamanna eru frekari ráðstafanir nauðsynlegar, ef menn ætla að halda sig við það að ná jafnvægi í skuldasöfnun 2025. En það er hins vegar ekkert fjallað nánar um það í hverju þessar ráðstafanir felast.
Stýrivextir Seðlabankans hafa verið lækkaðir umtalsvert að undanförnu til að hjálpa fyrirtækjum og heimilum að takast á við efnahagssamdráttinn og það er vel. Fjármálaáætlun gerir ráð fyrir því að það verði áframhaldandi lágt vaxtaumhverfi. Það held ég að sé ekki raunhæft, herra forseti, eins og þegar hefur komið í ljós. Vaxtahækkunarferli er þegar hafið og því má segja að nú þegar sé veigamikil forsenda þessarar áætlunar brostin. Umræða um fjármálaáætlun á að vera árangurstengd og markmiðatengd. Hún á að snúast um hagkvæmni og skilvirkni. Það gerir hún ekki. Í raun er þessi síðasta fjármálaáætlun þessarar ríkisstjórnar einungis efnahagsyfirlit. Eftir kosningar hefst nýtt tímabil, ný fjármálastefna og fjármálaáætlun.
Ný ríkisstjórn verður ekki bundin af þessari áætlun. En það er eðlilegt að ræða þessa hluti og þessi áætlun sýnir að ríkisstjórnarflokkarnir ætla sér að leggja upp með aðferðafræði sem skilar litlum árangri að mínum dómi. Þeir sýna ekki á spilin þegar kemur að þessum málefnasviðum sem er mjög mikilvægt. Það er sú framtíðarsýn sem þeir bjóða landsmönnum upp á þegar fjórir mánuðir eru til kosninga. Framtíðarsýn sem einkennist af metnaðarleysi. Markmið aðgerða stjórnvalda á að vera að skapa störf og auka verðmætasköpun fyrirtækja. Þannig bætum við lífskjör.
Ég held að flestallir séu sammála um að atvinnuleysið, baráttan gegn atvinnuleysinu, að draga úr því, sé stærsta viðfangsefnið fram undan á næstu misserum og árum, að vinna bug á atvinnuleysinu. Ég verð að segja eins og er, herra forseti, að þessi fjármálaáætlun blæs ekki þeim þúsundum Íslendinga von í brjóst sem eru atvinnulausir. Það er ekki verið að taka á því hér. Þjóðhagsspá Hagstofu Íslands gerir ráð fyrir miklu atvinnuleysi næstu ár. Miðað við spár er ljóst að atvinnuleysisstig hér á landi er að hækka. Í stað þess að hér sé náttúrulegt atvinnuleysi 2–3% er útlit fyrir að það verði 4–5%. Áframhaldandi hátt atvinnuleysisstig mun kosta ríkissjóð í kringum 40 milljarða kr. árlega út tímabilið sem er hátt í tvöföldun frá því sem var áætlað í málaflokkinn fyrir tilkomu kórónuveirufaraldursins. Þetta eru gríðarlegar upphæðir og í þessu samhengi þarf að huga að því hvaða reynslu og menntun eftirspurn er eftir á vinnumarkaði og hvernig megi styðja þá sem eru atvinnulausir til að öðlast þá reynslu og menntun. Það þarf að sjá til þess að gott upplýsingaflæði sé á vinnumarkaði til að lágmarka tíma sem fer í atvinnuleit. Mikilvægt er að jafnvægi ríki á vinnumarkaði varðandi laun og atvinnuleysisbætur þannig að það sé hvati til að ráða fólk og sækja atvinnu.
Hvati fólks til að sækja sér aukna menntun hefur minnkað á Íslandi. Við þetta bætist að þrátt fyrir að Ísland verji hlutfallslega miklu fé til grunnmenntunar miðað við önnur lönd í OECD þá endurspeglast það ekki í góðum árangri nemenda í samanburðarprófum PISA. Sé litið til þekkingar í lestri, vísindum og stærðfræði þá standa íslenskir 15 ára nemendur höllum fæti og það ástand hefur frekar farið versnandi. Þessi staða undirbyggir ekki hagvöxt til framtíðar og hér þarf að taka verulega á hlutunum svo við lendum ekki í vítahring þeirra ógæfu sem fylgir því að hafa mikið atvinnuleysi.
Atvinnuleysið er mismunandi eftir landsvæðum og allt að tvöfalt hærra á Suðurnesjum heldur en annars staðar á landinu. Á yfirstandandi ári er gert ráð fyrir 7,8% atvinnuleysi og að það lækki síðan hægt á næstu árum samkvæmt mati Hagstofunnar. Í lok kjörtímabilsins, eða 2026, verði það tæplega 5%. Það er eftir fimm ár. Slíkt atvinnuleysi er sambærilegt því sem var á atvinnuleysisárunum 1993–1995 og er óásættanlegt. Mjög mikilvægt er að bregðast við þessu. Ef frávik verða í spám um atvinnuleysi þarf að ráðast í afkomubundnar ráðstafanir, eins og segir í áætluninni. Ekki er gert grein fyrir þeim enda yrði það augljóslega óþægilegt fyrir ríkisstjórnina á kosningaári þegar einungis eru örfáir mánuðir til kosninga. Við gætum staðið frammi fyrir því að fara í mikinn niðurskurð til að ná því skuldahlutfalli sem lagt er upp með.
Í athyglisverðri skýrslu Alþýðusambands Íslands, Íslenskur vinnumarkaður 2020, er m.a. bent á hvernig atvinnuleysi hafi vaxið áður en útbreiðsla veirufaraldursins hófst og að hlutfall óvirkra ungmenna hafi aukist. Þróunin á vinnumarkaði ber með sér að kerfislægt atvinnuleysi hafi aukist á undanförnum árum og því hætta á að Íslendingar muni búa við hærra stig atvinnuleysis en þeir eigi að venjast. Þetta er að sjálfsögðu mikið áhyggjuefni, herra forseti.
Fjármálaráð gerir þessa þróun að umtalsefni í umsögn sinni en þar segir:
„Kerfislægt atvinnuleysi lýsir ástandi þegar hæfni fjölda atvinnuleitenda passar illa við þau lausu störf sem eru í boði. Viðkomandi aðilar eru því án starfs í lengri tíma en raunin er í leitaratvinnuleysi sem er tímabundið ástand þar sem fólk er á milli starfa. Í sinni alvarlegustu mynd leiðir kerfislægt atvinnuleysi til þess að einstaklingur hverfur alveg út af vinnumarkaði með tilheyrandi neikvæðum afleiðingum fyrir hann sjálfan og samfélagið.“
Stjórnvöld verða að útfæra frekari aðgerðir til að bregðast við atvinnuleysisvandanum og koma í veg fyrir langtímaatvinnuleysi. Hér gegna fyrirtækin í landinu lykilhlutverki.
Ég ætla að fara aðeins yfir það hversu mikilvægt það er að við bætum með öllum tiltækum ráðum starfsumhverfi fyrirtækja í landinu, vegna þess að þau eru lykillinn að því að fjölga hér störfum og vinna bug á atvinnuleysi. Það á að vera meginmarkmið þessarar áætlunar að bæta starfsumhverfi fyrirtækja af því að það tengist þeirri stóru áskorun, öðru meginmarkmiðinu, sem er að vinna bug á atvinnuleysinu. Fyrirtækin verða að geta stækkað og dafnað þannig að þau hafi svigrúm til að fjölga starfsfólki. Það er hagur allra að atvinnulífið fái þann stuðning sem það þarf til þess að geta skapað störf. Alþjóðastofnanir eins og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, Alþjóðabankinn og OECD benda á að farsælasta leiðin fyrir samfélög og efnahag þeirra sé að vaxa út úr efnahagsvandanum. Nýta verður afl opinberra fjármála til að draga úr atvinnuleysi, fjölga störfum í samstarfi við einkaframtakið og ýta undir að einkaframtakið geti blómstrað, fyrirtækin í landinu geti blómstrað. Það er hagur allra og hagur þeirra sem eru að leita sér að starfi. Á tíma fjármálaáætlunarinnar verður að tryggja samkeppnishæft starfsumhverfi sem laðar til landsins fólk og fyrirtæki. Hlúa ber betur að hugverkaiðnaðinum sem er vaxandi. Írland, sem er ekki langt frá okkur, hefur tekið vel á móti erlendri fjárfestingu og þar koma 26% útflutningstekna frá gagnaverum og hugverkaiðnaði.
Regluverkið hér á landi er of flókið og svifaseint. Auka má hagkvæmni með því að lækka álögur á fyrirtæki, t.d. með lækkun tryggingagjalds og fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði. Þetta kemur m.a. fram í umsögn Samtaka iðnaðarins en samtökin komu á fund nefndarinnar og sendu inn mjög góða umsögn. Tímabundin lækkun tryggingagjaldsins er jákvæð. Ég dreg alls ekki úr því. Miðflokkurinn hefur hins vegar lagt áherslu á það allt þetta kjörtímabil að ráðast þurfi í varanlega lækkun tryggingagjaldsins. Tryggingagjaldið leggst á launagreiðslur og myndi lækkun gjaldsins auka svigrúm fyrirtækja og auðvelda þeim að fjölga starfsfólki nú þegar brýn þörf er á því. Miðflokkurinn hefur lagt fram breytingartillögur við fjárlög þess efnis að lækka tryggingagjaldið, sem hafa því miður verið felldar. Frekari lækkun tryggingagjaldsins er nauðsynleg aðgerð fyrir íslenskan vinnumarkað. Nauðsynlegt er að efla starfsumhverfi fyrirtækja og mikilvægt til að efla samkeppnishæfni landsins.
Mikil uppsöfnuð þörf er þegar kemur að fjárfestingum í innviðaverkefnum. Flýta á þessum verkefnum eins og kostur er. Þar eiga menn ekki að vera hræddir við aðkomu einkaaðila. Stjórnvöld þurfa þá ekki að veita hlutfallslega meiri fjármuni í slík verkefni heldur geta einbeitt sér að grunnþjónustu og því að draga úr halla ríkissjóðs. Lífeyrissjóðirnir hafa áhuga á því að koma að fjárfestingum í innviðum og stjórnvöld eiga að nýta sér það.
Ég verð að segja það, herra forseti, að mér finnst svolítið sérkennilegt hvað hefur verið lítið fjallað um að lífeyrissjóðirnir kæmu að þeirri nauðsynlegu viðspyrnu sem er hér í hagkerfinu. Það hefur lítið verið talað um hversu öflugir þeir eru í því sambandi og hvað þeir gætu látið gott af sér leiða í þeim efnum.
Hvað byggingariðnaðinn varðar sérstaklega ríkir ákveðið andvaraleysi hvað varðar hagstjórn eins og stöðu framboðs og eftirspurnar á húsnæði. Fyrirsjáanleika vantar, lóðaskortur ríkir, regluverk er flókið. Við blasir ósveigjanleiki og tafir. Einfalda þarf umhverfi byggingar- og mannvirkjagerðar þar sem skortur er á eignarhaldi og yfirsýn yfir málaflokkinn. Núverandi starfsumhverfi byggingarmála er óskilvirkt og óhófleg reglubyrði eykur jafnframt flækjustig. Boðleiðir eru langar og ákvarðanataka tímafrek. Skipulagsferlið er of þungt í vöfum, ég hef sjálfur reynslu af því, og tekur allt of langan tíma að fá tilskilin leyfi. Það hefur síðan kostnað í för með sér og dregur úr þeim þróttinn sem vilja koma þaki yfir höfuðið og vilja fara eigin leiðir og nýta sjálfsbjargarviðleitni sína til að koma húsi sínu á laggirnar. Það dregur auðsjáanlega þróttinn úr fólki þegar það þarf endalaust að bíða eftir leyfum og framvísa hinu og þessu.
Tryggja þarf styttri afgreiðslutíma og koma í veg fyrir hamlandi skipulagsskilmála sem leiða til aukins kostnaðar og tafa við byggingu húsnæðis og hamla nýsköpun. Á þetta hafa Samtök iðnaðarins bent. Stjórnvöld verða að bregðast við þessu. Það þarf aðgerðir. Það er búið að tala oft um þetta en það hefur ekkert verið gert til þess að taka á vandanum. Hér vantar í raun sameiginlega stefnu iðnaðarins og stjórnvalda. Umsvif rannsókna í byggingariðnaði þarf að auka. Styrkjaumhverfið virðist allt að því útiloka rannsóknir á öðru en einstökum íhlutum bygginga eða þróun byggingarefnis en heildrænar rannsóknir sem nátengdar eru þjóðarhag virðast hafa orðið út undan. Áhrif myglu í húsnæði eru t.d. að reynast þjóðinni mjög kostnaðarsöm sem og ríkissjóði. Það kom m.a. fram í svari við fyrirspurn minni til efnahags- og fjármálaráðherra að það reynist ríkissjóði mjög dýrt í húsnæði á vegum ríkissjóðs.
Ég held að við hljótum að átta okkur á því að öflug sókn atvinnulífsins er lykillinn að viðspyrnunni. Að endurreisa hagkerfið þar sem einblínt er á ferðaþjónustuna sem máttarstólpa er ekki alveg skynsamlegasta leiðin. Við getum ekki stólað svona gríðarlega mikið á eina atvinnugrein sem hefur orðið fyrir þeim mikla skelli sem við þekkjum. Þess vegna er mjög mikilvægt að hafa fjölbreytni í atvinnulífinu. Á það hefur verið bent að störf innan ferðaþjónustunnar verða ekki þau sömu og þau voru fyrir veirufaraldurinn, að þeim muni fækka. Við þurfum því að bæta rekstrarskilyrði þeirra atvinnugreina sem eru hér fyrir. Á það hafa Samtök iðnaðarins einnig bent.
Nýsköpun er orð sem við heyrum oft og er ein meginforsenda framleiðniaukningar, verðmætasköpunar, samkeppnishæfni og gjaldeyrisöflunar fyrirtækja og þjóða. Nýsköpun í atvinnulífi leggur grunninn að sköpun verðmæta og eftirsóttra starfa til framtíðar. Aukningin sem hefur átt sér stað til nýsköpunar er sannarlega mikilvæg og vonandi skilar það okkur þeirri verðmætaaukningu sem væntingar standa til. En við verðum líka að átta okkur á því að framlög til nýsköpunar eru svolítið langhlaup og skila ekki því sem við viljum að þau skili fyrr en eftir tiltekinn tíma. En það er nauðsynlegt að fjölga þeim stoðum sem eru drifkrafturinn í gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins og á það höfum við lagt ríka áherslu í Miðflokknum.
Ég verð að segja það, herra forseti, að eftir að hafa farið yfir þessa fjármálaáætlun og setið í fjárlaganefnd þetta kjörtímabil, sem brátt er á enda, þá finnst mér vera skortur á að fjárlagagerð sé árangursmiðuð. Ég hef reyndar tekið þessa umræðu við formann nefndarinnar, hv. þm. Willum Þór Þórsson, og hann er að mörgu leyti sammála mér í því að við þurfum að bæta okkur í þeim efnum. Það er mikilvægt að fram fari umræða um það hvaða árangri fjárveitingar eigi að skila, hvaða árangri fyrri fjárveitingar hafi skilað, umræða um það hvernig almenningur geti treyst því að almannafé sé nýtt með skynsamlegum hætti, og hvernig eigi að meta og mæla árangurinn. Árangur er ekki eingöngu metinn af útgjöldum heldur þjónustunni sem er verið að veita. Þetta er að sjálfsögðu efni í langa umræðu. Ég ætla ekki að fara nánar yfir það hér en það er mjög mikilvægt að fjárveitingavaldið, Alþingi, fái að vita hvaða árangri fjárveitingarnar hafa skilað. Það er ekki hægt að setja fjármuni endalaust í ákveðin verkefni án þess að árangursmat liggi fyrir í fjármálaáætlun. Í fjármálaáætlun sem þessari ætti að vera áhersla á vandaðar og skýrar árangursmælingar og yfirlit í þeim efnum.
Ég ætla að víkja aðeins að aukningu til loftslagsmála sem er í þessari áætlun og hún víkur einmitt að árangursviðmiðum og árangursmælingum. Í fjármálaáætluninni er umfjöllun um umhverfis- og loftslagsmál, samanber rammagrein 11, þar sem gerð er grein fyrir áætlun um aukningu á útgjöldum til loftslagsmála um 10 milljarða kr. til ársins 2031. Eins og fram kemur í þeirri umfjöllun er markmiðið að Ísland standist uppfærðar skuldbindingar sínar í loftslagsmálum frá júní 2020. Miðflokkurinn tekur undir að draga þurfi úr losun gróðurhúsalofttegunda og á heimsvísu er verkefnið mjög mikilvægt. Hér á landi hefur mikill árangur náðst í þeirri baráttu á síðustu áratugum, m.a. með nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa en um 90% alls húsnæðis eru hituð upp með hitaveitu svo að dæmi sé tekið og er það einstakt á heimsvísu, að ógleymdri okkar umhverfisvænu raforku. Þannig má fullyrða að Ísland standi vel að vígi í þessum málaflokki.
Boðuð hækkun á framlögum til loftslagsmála í áætluninni er hins vegar stefnulaus. Hér er verið að leggja til hækkun um 1 milljarð kr. á ári til næstu tíu ára. Við vitum hins vegar ekki hverju þessi hækkun mun skila. Ekkert kemur fram um það. Hækkunin er ekki árangursmæld. Slík markmið geta tæpast talist metnaðarfull. Það er sjálfsögð og eðlileg krafa að fjárveitingar hins opinbera séu árangursmældar, að það liggi fyrir að fjárveitingar til málaflokksins skili árangri. Það verður að vera ljóst í hvaða verkefni á að ráðast. Hæstv. umhverfisráðherra hefur einmitt í fyrirspurnum, munnlegum og skriflegum, sagt að það sé erfitt að mæla árangurinn í þessum efnum. Að auka útgjöld um 10 milljarða kr. og geta ekki mælt árangurinn sem það á að skila er með öllu óviðunandi og ekki í samræmi við stefnuna að auka útgjöldin þegar ekki er hægt að mæla árangurinn. Spyrja má hvort stjórnvöld hafi ekki náð tökum á því að búa til góða mælikvarða og gögn sem gera mönnum kleift að mæla árangur eða engan árangur. Ég held að það sé eðlilega krafa að þessir hlutir séu í lagi þegar úr er að spila svo miklum fjármunum. Árið 2022 verður t.d. metár í fjárframlögum til loftslagsmála eða 13,3 milljarðar kr. Þetta eru miklir peningar og gera verður þá kröfu að þessari fjármálaáætlun fylgi vönduð skýrsla eða tafla sem sýnir mat á árangri, hvað við erum að fá fyrir þessa peninga. Rætt er um náttúrumiðaðar lausnir í loftslagsmálum í áætluninni. Það er hins vegar ekkert skýrt nánar. Á árunum 2022–2031 á að setja 3,7 milljarða kr. í þær. Því verður að svara hverjar þessar náttúrulausnir eru og hvaða árangur næst með þeim.
Ég ætla að víkja næst að þeim aðgerðapökkum sem ríkisstjórnin hefur sett fram, og Miðflokkurinn hefur stutt flestar þær aðgerðir, vegna faraldursins. Þess er ekki getið í áætluninni hvaða árangri aðgerðapakkar ríkisstjórnarinnar vegna veirufaraldursins, upp á tugi milljarða, hafa skilað þrátt fyrir að lög um opinber fjármál kveði á um að meta beri árangur af þeim aðgerðum. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar einkenndust um margt af örvæntingu og voru ekki nægilega vel undirbúnar eins og við sáum svo glögglega þegar stöndug fyrirtæki fóru að nýta sér úrræði líkt og hlutabótaleiðina án þess að þurfa á þeim að halda. Hér var undirbúningur laganna einfaldlega ófullnægjandi.
Hlutabótaleiðin skilaði tilætluðum árangri og landsmenn hafa tekið út mun meira af séreignarsparnaði sínum en stjórnvöld gerðu ráð fyrir. Ein helsta aðgerðin sem ríkisstjórnin kynnti til leiks í mars á síðasta ári var að veita fyrirgreiðslu til að auðvelda viðbótarlán lánastofnana til fyrirtækja. Þetta átti að gera þannig að ríkið semdi við Seðlabanka Íslands um að færa lánastofnunum aukin úrræði til að veita viðbótarfyrirgreiðslu til fyrirtækja, í formi brúarlána, sem orðið hefðu fyrir verulegu tekjutapi vegna yfirstandandi aðstæðna. Í stuttu máli má segja að þessi aðgerð, sem var rækilega kynnt af ríkisstjórninni, komst seint og illa til framkvæmda og var síðan þegar upp var staðið ekki að gera sig og áhuginn lítill.
Árangur aðgerða ríkisstjórnarinnar er mjög mismunandi. Sumar hafa staðið undir væntingum en aðrar ekki. Nú er komið að ákveðnu endurmati á aðgerðum og eðlilegt að því sé svarað hvort náðst hafi góður árangur og að hvaða marki hefur tekist að mæla árangurinn. Óljóst er hvort ríkisstjórnin hafi yfir höfuð áætlanir um að mæla árangurinn.
Í áætluninni er eitt meginmarkmiðið sagt vera að stöðva vöxt skuldahlutfallsins þannig að árið 2026 verði það undir 60%. Annað á að sníða til til þess að ná þeirri niðurstöðu. Þetta er þrátt fyrir að atvinnuleysið sé stærsta viðfangsefnið fram undan eins og áður segir. BSRB bendir á í umsögn sinni að mikilvægt sé að styðja við umsvif í hagkerfinu en draga ekki úr þeim með óskynsamlegu markmiði um skuldastöðvun. Á einhverjum tímapunkti þarf að stöðva skuldasöfnun en það verður að taka mið af umsvifum í hagkerfinu en ekki fyrir fram gefnu ártali. Rekstrarhallinn verður 223 milljarðar kr. á næsta ári og 151 milljarður á árinu 2023 en áætlunin gerir ráð fyrir að afkoma ríkissjóðs fari smám saman batnandi og jákvæðum frumjöfnuði verði náð á árinu 2025. Skuldirnar ættu að ná hámarki 2025 og verða um 54% af vergri landsframleiðslu í stað 60%, sem gert var ráð fyrir í síðustu fjármálaáætlun.
Fjármálaráð bendir á í umsögn sinni að mikilvægt sé fyrir ríkissjóð að beita ekki jafn ströngum aðhaldsaðgerðum og áætlunin gerir ráð fyrir. Ráðið bendir jafnframt á að fjármagnsjöfnuður hins opinbera hafi lækkað verulega síðastliðin ár og muni haldast nokkuð stöðugur sem hlutfall af vergri landsframleiðslu á tímabili áætlunarinnar, eða fara úr 1,8% af vergri landsframleiðslu í 1,9% á tímabilinu þrátt fyrir að skuldsetning aukist verulega.
Huga mætti betur að áhættumati skulda hins opinbera, hversu miklar líkur séu á því að annað efnahagsáfall verði á tímabili fjármálaáætlunar og hvernig vægi er í því miðað við núverandi skuldastöðu.
Engar meiri háttar tekjuöflunarráðstafanir er að finna í áætluninni þrátt fyrir tekjuminnkun. Hún er lögð fram án þess að tekjuöflun sé tryggð til að loka hallanum sem verður á ríkissjóði. Áfram er halli á heildarjöfnuði sem nemur vaxtagjöldum. Talsvert miklar hliðranir eru á tölum.
Fjármálaáætlunin gerir ráð fyrir niðurskurði. Árið 2022 verður gerð 2% almenn aðhaldskrafa og 0,5% á heilbrigðisstofnanir, öldrunarstofnanir og skóla. Á árunum 2023–2026 verður gerð 1% almenn aðhaldskrafa að heilbrigðis- og öldrunarstofnunum, skólum, dómstólum, bótakerfum og sjúkratryggingum undanskildum. Þá verður viðbótaraðhaldskrafa sem nemur 15 milljörðum kr. árlega á árunum 2023–2025. Sú aðhaldskrafa er ekki útfærð nánar. Samanlagt eiga þessar aðgerðir að skila um 34 milljarða kr. afkomubata árlega árin 2023–2025 en gera má ráð fyrir að þar muni niðurskurði verða beitt umfram tekjuöflun því að fram kemur í greinargerð að stefnt sé að því að útgjöld hins opinbera vaxi hægar en landsframleiðslan. ASÍ varar við því í umsögn sinni að of þung áhersla á að draga úr skuldum ríkissjóðs geti hægt á efnahagsbatanum og viðhaldið miklu atvinnuleysi.
Athyglisvert er að skoða umsögn fjármálaráðs þegar kemur að tekjuöflun ríkissjóðs og veikleikum í afkomu. Ráðið getur þess að veikleikar í afkomu hafi verið ljósir og illa hafi gengið að halda fjármálaáætlunum innan ramma stefnumiða, jafnvel í mikilli uppsveiflu. Ég fór aðeins yfir þetta í andsvari með hv. þingmanni og formanni fjárlaganefndar, Willum Þór Þórssyni. Þetta er nokkuð augljós ofanígjöf frá fjármálaráði til ríkisstjórnarinnar, að það hafi gengið illa að halda þessi stefnumið, jafnvel í mikilli uppsveiflu. Það verður að segjast eins og er að það er svolítill áfellisdómur yfir fjármálastjórn þessarar ríkisstjórnar.
ASÍ leggur áherslu á að mikilvægt sé að huga að styrkingu tekjustofna á komandi árum þannig að eðlilegur viðsnúningur geti náðst í ríkisrekstrinum án þess að ráðist verði í niðurskurð á grunninnviðum samfélagsins. Þá telur Alþýðusambandið ástæðu til að gagnrýna að hluta þær skattbreytingar sem stjórnvöld hafa talið forgangsmál í djúpri efnahagskreppu. ASÍ nefnir þar sérstaklega lækkun bankaskattsins. Í því sambandi er athyglisvert að sjá hversu hagnaður bankanna hefur aukist og hvernig honum er ráðstafað. Arion banki hagnaðist t.d. um 12,5 milljarða kr. á síðasta ári en telur engu að síður nauðsynlegt að segja upp 20 manns. Ekki höfum við séð að bankarnir séu að lækka þjónustugjöldin þrátt fyrir lækkun bankaskattsins og betri afkomu.
Það er staðreynd að einkaneysla almennings, heimilanna í landinu, mildaði efnahagssamdráttinn.
Hagstofan áætlar að verg landsframleiðsla hafi dregist saman um 6,6% á síðasta ári, þ.e. djúpur efnahagssamdráttur en þó minni en greiningaraðilar óttuðust. Það eru heimilin sem eru að skuldsetja sig og eyða sparnaði sínum. Mikil íbúðafjárfesting og önnur eyðsla almennings er lykillinn að því að þetta fór ekki eins illa. Það er því hagfelld fjárhagsstaða heimilanna í aðdraganda krísunnar sem hefur skipt verulegu máli. Heimilin hafa getað haldið uppi neysluútgjöldum, m.a. vegna lægri vaxta og með því að fresta lánaafborgunum og taka út séreignarsparnað. Einkaneysla dróst einungis saman um 3,3% á síðasta ári en til samanburðar dróst einkaneysla saman um að meðaltali 10% á ári í kjölfar efnahagshrunsins 2008–2009. Þarna er mikill munur á. Hafa ber þó í huga að efnahagsáfallið vegna veirufaraldursins hefur komið mjög ójafnt niður á heimilunum í landinu. Þeir sem hafa haldið atvinnu hafa getað nýtt sér lágvaxtaumhverfi og búið við góðar efnahagslegar aðstæður og aukinn kaupmátt. Þeir sem hafa misst vinnuna hafa hins vegar orðið fyrir gríðarlegu tekjufalli. Síðan hafa einstök landsvæði orðið sérstaklega illa úti eins og Suðurnesin en þar voru 3.600 manns atvinnulaus í apríl.
Ég ætla að koma aðeins inn á í lokin, nú er tíminn að styttast, rekstrarforsendur hjúkrunarheimila sem enn eru í mikilli óvissu. Í fjármálaáætluninni er gert ráð fyrir því að fjárfesta í tilteknum fjölda hjúkrunarrýma en minna fer fyrir því hvernig eigi að reka þessi rými. Fjárvöntun hjúkrunarheimilanna, að mati Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, er allt að 4–6 milljarðar kr. og eru lífskjarasamningarnir þá teknir þar með og stytting vinnuvikunnar sem hefur reynst kostnaðarsöm. Stefnir hraðbyri í ófremdarástand í rekstri hjúkrunarheimila komi stjórnvöld ekki að vandanum. Í þessari áætlun hafa verið gefin vilyrði fyrir alls konar fjárfestingum sem ekki eru sýnileg. Þannig er að finna innihaldslausar yfirlýsingar í þessari áætlun.
Það er mjög mikilvægt í mínum huga og okkar Miðflokksmanna að greiða götu erlendrar fjárfestingar í landinu. Í fjármálaáætluninni er fjallað um beina erlenda fjárfestingu og þar segir að bein erlend fjárfesting sé okkur mikilvæg. Þess vegna ber stjórnvöldum að ryðja burt þeim hindrunum sem eru á vegi erlendrar fjárfestingar hér á landi. En hvernig er þetta í raun hér á landi og hvernig hafa stjórnvöld staðið sig þegar kemur að erlendri fjárfestingu? Ef skoðaður er fjöldi þeirra tvísköttunarsamninga sem Ísland hefur gert kemur í ljós að þeir eru mun færri heldur en nágrannaþjóðir okkar hafa gert. Í skýrslu utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra um alþjóðamál, sem lögð var fram á Alþingi fyrir skömmu, kemur fram að Ísland hefur einungis gert 45 tvísköttunarsamninga á sama tíma og Danmörk hefur gert 76 samninga, Noregur 87, Holland 95 og Bretland 126. Árangur Íslands í þeim efnum er óviðunandi og skekkir samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja vegna þess að tvísköttunarsamningar eru mjög mikilvægir. Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra hefur viðurkennt að Ísland hafi ekki staðið sig nægilega vel að þessu leyti.
Samtök iðnaðarins segja í sinni umsögn að stjórnvöld mættu huga að því að gefa skýrt til kynna áhuga sinn á beinni erlendri fjárfestingu og uppbyggingu nýs iðnaðar annars vegar og hins vegar að vinna að nauðsynlegum umbótum til að ryðja hindrunum úr vegi fyrir slíkri uppbyggingu.
Herra forseti. Kosningar eru á næsta leiti og ber fjármálaáætlunin þess merki. Halda þarf vel á fjármálum ríkisins næstu misseri. Enn ríkir óvissa um hagþróun og atvinnuleysi verður áfram sögulega mikið. Stjórnvöld þurfa að huga að því hvaða áhrif aðgerðir þeirra hafa á þróun samkeppnishæfni atvinnulífs, stöðu vinnumarkaðar og þróun eignaverðs sem og hvernig gengi og verðbólga mun þróast í samspili peningamálastefnu og stjórnar opinberra fjármála.
Krefjandi verkefni bíða næstu ríkisstjórnar þegar kemur að efnahagsmálum enda má segja að vandanum hafi verið velt yfir á næsta kjörtímabil. Til að opinber fjármál lendi ekki í öngstræti og verðbólga fari ekki enn frekar á skrið (Forseti hringir.) þarf hagvöxtur að vera mikill næstu misserin eftir að veirufaraldrinum lýkur. Eins og staðan er nú er óvíst að það gangi eftir. Vonandi verður það ekki reyndin.