151. löggjafarþing — 101. fundur,  26. maí 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[18:53]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Já, þannig er það. Við þurfum að gera betur og þetta eru allt saman viðvarandi verkefni. Það er til lítils að draga fram stóraukin framlög í milljörðum talið og háum hlutföllum ef við látum ekki skipulag og úrræðin fylgja. Hv. þingmaður kom inn á forgangsröðun og það er auðvitað það sem okkar starf snýst um, að bæta forgangsröðunina, beina verkefnunum þangað sem þau hjálpa mest og við getum alveg verið sammála um það. Það er það sem við eigum að einbeita okkur að. Hv. þingmaður kom inn á vel stæðan ríkissjóð. Það er þannig að velferðarkerfið okkar er farið að taka 6 af hverjum 10 kr. sem við fáum í skatttekjur og með vaxandi öldrun mun það taka meira til sín. Það mun reyna á okkur í stefnumótun til framtíðar að nýta betur fjármagnið, nýta betur peningana. Það er auðvitað viðvarandi verkefni. En ég ætla bara að taka heils hugar undir með hv. þingmanni sem kom svo vel inn á það í sinni ræðu að verja velferðina, útrýma fátækt og taka utan um börnin okkar. Ég held að við getum öll verið sammála um að það sé mikilvægt verkefni.