151. löggjafarþing — 101. fundur,  26. maí 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[19:46]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Við erum búin að taka þennan snúning nokkrum sinnum í vinnu í fjárlaganefnd við m.a. fjármálaráðuneytið varðandi þetta ferli sem hv. þingmaður nefnir, þegar verið er að ákveða og áætla kjör og aldrei hitt á rétta hlutinn í því. Hvað eigum við að gera? Það er hægt að breyta lögum. Það er hægt að breyta lögum í þá veru að ekki sé tekið mið af þessu. Væri til þess meiri hluti á Alþingi á einhverjum tíma og væri vilji þeirra sem um málið véla, þ.e. eldri borgara eða öryrkja, að fara þá leið að miða við eitthvað annað er það algerlega í okkar valdi að gera það. Hv. þingmaður talar um annars vegar krónutöluhækkun í lífskjarasamningunum og hins vegar prósentuhækkun, sem alla jafna er notuð eins og við þekkjum, þótt ég sé miklu hlynntari krónutöluhækkun, ég ætla bara að segja það. Ég tel að það komi sér yfirleitt betur fyrir þá sem lægstir eru í launastiganum og hefði sjálf viljað nálgast launasamninga með þeim hætti eða varðandi tryggingar eða slíkt. Ég veit ekki hvort það er skynsamlegt, en ég tel að það sé þannig að það skili sér betur til þeirra sem minna hafa. Við höfum verið að gera ýmislegt, það má ekki gleyma því, það er alls konar tengt þessu, sérstaklega varðandi eldri borgara, sem gert hefur verið til að lagfæra kjörin og í neðstu tíundunum. Við höfum verið að gera það. En nákvæmlega þessi póstur, við hvað á að miða og hvort við eigum að breyta — ég veit ekki, kannski höldum við áfram í mörg ár í viðbót að tala um það án þess að það gerist nákvæmlega eins og einhverjir vilja. (Forseti hringir.) Eða við veltum því alvarlega fyrir okkur: Er þetta aðferðin sem við viljum nota?