151. löggjafarþing — 101. fundur,  26. maí 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[20:40]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og það sem þar kom fram. Auðvitað erum við hv. þingmaður oft sammála um ýmsa hluti og það er bara gott ef við getum verið sammála. Mér finnst þó skorta aðeins og ég veit ekki hvort það er vegna þess að hv. þingmaður — ja, ég ætla ekki að fara að búa til neitt um það, en mér fyndist betra ef þessa sæist betur stað í ýmsu sem við erum að gera og sérstaklega af því að við höfum oft átt mjög gott spjall um nýsköpun og þróun og mikilvægi hennar, sem við erum, held ég, alveg fullkomlega sammála um. Ég vil bara ítreka það sem ég sagði áðan að ég vil alveg hrósa ríkisstjórninni fyrir margt gott sem hún hefur gert þar. En auðvitað er stóra gagnrýniatriði mitt og fleiri það að menn skuli ekki ákveða að koma á þessum kraftmikla stuðningi sem hefur verið settur í gang núna og láta hann duga lengur og til framtíðar, a.m.k. svona skammtímaframtíðar, kannski fimm ára eða hvað það nú kann að vera, og síðan væri það endurskoðað reglulega. Það er svo vont þegar verður svona uppihald í stuðningnum. Það eru svo margir sem leggja af stað og þetta tekur tíma og menn reikna með einhverju. Nú getur vel verið að margir séu orðnir skíthræddir um hvað gerist næst, hvort það raungerist að dregið verði úr stuðningnum. Verðum við ekki að drífa okkur áfram í að rannsaka eins og brjálaðir menn eða hvað það nú kann að vera? Kannski verða það ekki eins góðar rannsóknir eða tímabærar. Þetta er viss hætta sem getur komið upp.